157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er á ferðinni gott mál og ég sé mig knúinn til að lýsa því sérstaklega yfir og fagna því að hér skuli verið að taka á málefnum þeirra sem upplifa þær hörmungar að missa barn eða andvanafæðingu eða fósturlát. Ég vil nota þetta tækifæri, af því að ég er ekki alltaf í því og ekkert kannski þekktastur í þessum þingsal fyrir það, og hæla hæstv. ríkisstjórn fyrir þetta mál.