157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
286. mál
Frú forseti. Fyrir hönd Viðreisnar kem ég hér upp og ég segi það náttúrlega að við erum öll samþykk þessu frumvarpi og munum greiða atkvæði með því, eðlilega. Þetta er gott sanngirnis- og réttlætismál, að það fari ekki eftir dagsetningu hvenær barn fæðist heldur eftir því hvenær viðkomandi lagabreyting tekur gildi þar sem greiðslur eru hækkaðar. Ég fagna þessu og við fögnum þessu í Viðreisn og segjum já.