fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Þetta eru jákvæðar breytingar hér og mikilvægt að hæstv. ríkisstjórn sé með augun á boltanum í þessum málum sem eru einna mikilvægustu málin að mínu mati, sem eru hagsmunir og staða barnafjölskyldna og tækifæri fólks til að fjölga sér. Það eru fleiri skref sem þarf að stíga, sannarlega. Það þarf að skoða viðmiðunartímabilið þannig að kerfið sé ekki að hvetja fólk til þess að láta líða ákveðinn langan tíma á milli barna eins og það er að gera núna. Það þarf líka að auka frelsi foreldra til að ráðstafa þessu sín á milli. Þessi forræðishyggja sem nú er við lýði hefur mjög neikvæð áhrif. Á meðan við erum í þessari umræðu myndi ég óska eftir því kurteislega ef hæstv. forsætisráðherra sæi sér fært að koma hér upp í pontu og gera grein fyrir því hvaða afstöðu hann hefur til þess, en skil ef hann forðast umræðuna. En það eru brýnu verkefnin inni í fæðingarorlofskerfinu. Þessar breytingar hér eru ekki meiri háttar en þær eru ágætar. Stóru skrefin þarf enn að stíga og þar ber hæstv. ríkisstjórn mikla ábyrgð á þessum síðustu og verstu tímum, að raunverulega taka til í þessum málaflokki vegna þess að þróunin er ískyggileg þegar kemur að barneignum á Íslandi.