157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt skref og það er dýrmætt að heyra samstöðuna hér í þingheimi um að taka þetta skref sem er svo sannarlega mikilvægt í fæðingarorlofinu og er eitt stærsta jafnréttismál sem hefur verið samþykkt á síðari tímum. Þá er ég að vitna í m.a. hv. þingmann og samstarfsmann, Pétur H. Blöndal, sem barðist mjög fyrir þessu máli, var ötull stuðningsmaður fæðingarorlofsins af því að hann sá það fyrst og síðast sem jafnréttismál sem síðan myndi styrkja bæði kynin, báða foreldra þegar þeir færu út á vinnumarkað og ekki síst að það myndi auka verðmætasköpun og lífsgæði hér í samfélaginu. Það hefur frumvarpið svo sannarlega gert. Er hægt að bæta það? Er hægt að styrkja það? Já, ekki spurning, enda hefur okkur lánast að taka hvert skrefið á fætur öðru en ég vara við því ef það á að fara að hrófla við kerfinu þannig að konur verði aftur bara heima og hafi ekki sömu tækifæri á vinnumarkaði. Við erum búin að ná gríðarlegri framþróun, allir flokkar fram til þessa á þingi, varðandi það hvernig við fylgjum eftir fæðingarorlofinu. Það þarf stóra og mikla umræðu ef það þarf að breyta því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)