viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Þetta er vont kerfi. Það er hannað fyrir stóran meginlandsmarkað. Þetta kerfi leggst mun þyngra á Ísland en önnur ríki. Innleiðing þess hefur þegar leitt til verri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og ef ekkert verður að gert eða brugðist við þá er fyrirséð að áhrifin verði viðvarandi. Miðflokkurinn kallar eftir heildarendurskoðun þessa kerfis þar sem verður að taka fullt tillit til sérstöðu Íslands innan EES, sérstaklega hvað varðar flug og sjóflutninga. Það þarf að laga útfærsluna, það þarf að nýta til fulls undanþáguheimildir og það þarf að herða hagsmunagæslu til muna. Það þarf að beita sér hart gagnvart ESB og í EES-nefndinni fyrir framlengingu sérlausna Íslands í flugi eftir árið 2026.
Frú forseti. Þingmenn Miðflokksins munu greiða atkvæði gegn þessu.