kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki. Þetta mál var tekið fyrir milli 2. og 3. umræðu og voru á því gerðar nokkrar breytingar sem eru allar, svo það sé sagt, tæknilegs eðlis. Í fyrsta lagi er það breyting sem snýr að lagaskilum. Í öðru lagi er breyting sem snýr að því hvernig skuli gera upp tímabilið um áramótin og er fordæmið fyrir því sótt í önnur sambærileg lög. Í þriðja lagi er gert ráð fyrir ákveðnum breytingum til þess að leiðrétta ákveðna misritun sem hefði gert það að verkum að ekki væri ljóst með hvaða hætti ætti að leggja þessi gjöld á bíla á ákveðnu, mjög stuttu, bili. Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem nefndar eru í skjalinu.
Ég vil líka nefna að það hafa borist hér við 2. umræðu breytingartillögur frá nokkrum hv. þingmönnum sem ég þakka. Um er að ræða breytingartillögu frá Stefáni Vagni Stefánssyni, frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Hann leggur til þrennt:
Í fyrsta lagi undanþágu ökutækja sem eru 25 ára og eldri, sem sagt svona fornbílaundanþágu. Um það skal sagt að það eru auðvitað ákveðin fordæmi fyrir þessum árafjölda en það skal samt segjast að það er ákveðinn munur þarna á af því að í dag hafa bílar sem eru fornbílar og skilgreindir sem eldri náttúrlega ákveðnar undanþágur varðandi skoðun og fleira. Mælist svona af því að það væri ekkert endilega vitrænt að draga þessa bíla út á hverju einasta ári og láta þá fara í skoðun. Sömuleiðis eru undanþágur í þá veru að bílar þurfa ekki að uppfylla skilyrði sem voru ekki í gildi þegar bílarnir voru framleiddir. Það þarf ekki að setja bílbelti á alla bíla sem eru eitthvað eldri. En þessir bílar eru auðvitað ekki undanþegnir bensíngjöldum. Þeir fá bensíngjöldin sín ekki niðurgreidd. Þeir borga fyrir afnot af vegunum og kílómetragjaldið er greiðsla fyrir afnot af vegum. Það er ekki hugsað sem refsing fyrir að aka vegina heldur einfaldlega að borga fyrir það sanngjarnt, lítið gjald. Lítið fé í tilfelli fornbíla, þessum bílum er ekki ekið marga kílómetra á hverju ári.
Í öðru lagi er þarna lögð fram tillaga um gjaldtöku ökutækjaleigna, að það sé hægt að færa á milli kerfa á hverjum einasta degi en ekki á 15 daga fresti. Eins og ég nefndi þá var í upprunalegu tillögunum, þegar frumvarpið var lagt fram fyrir tveimur árum eða á seinasta þingi, lagt til að tímabilið væri þrír mánuðir, síðan var það stytt niður í mánuð og svo í 15 daga þannig að við höfum gengið nokkuð langt í því. Ég hefði svo sem alveg samúð með því að ganga lengra en þetta var svona talan sem við fengum að væri alla vega tæknilega framkvæmanleg hvað skattinn varðar þannig að ég myndi leggja til að við myndum halda henni.
Í þriðja lagi er tillaga um að það yrði ekki veittur 40% afsláttur á fyrsta ári, 20% afsláttur á næsta og svo enginn eins og lagt er til nú, heldur að það yrði 30% varanlegur afsláttur af eftirvögnum, varanlegur. Ég hafði skilið Framsóknarflokkinn á kannski nokkra vegu. Formaður Framsóknarflokksins nefndi það hér að hann hefði hugsað þetta til nokkurra ára en þetta er sem sagt hugsað ótímabundið.
Ég vil líka nefna breytingartillögu sem var samþykkt hér að leggja fyrir fundinn, með afbrigðum, frá hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni og varðar það að veita afslátt fyrir ökutækjaleigur almennt, að hann yrði 25% á fyrsta ári og 15% á næsta ári. Það skal taka fram, sem hefur verið sagt áður, að ég held að þetta hafi ekki verið kostnaðarmetið en gróft kostnaðarmat er að þarna hlaupum við örugglega á einhverjum milljörðum af því að við erum þarna að tala um að 20% af öllum bílum í umferð að meðaltali eru bílaleigubílar. Og ef 20% af bílum eiga að fá 25% afslátt af notkun vegakerfisins er það umtalsvert. Það væri eins og við værum að leyfa núna öllum ferðamönnum eða þeim sem myndu keyra um á bílaleigubílum að borga lægra verð á dælu af því að þeir myndu fá afslátt af olíugjöldum. Og út af því að þessi lög gera ráð fyrir að bensíngjöldin falli niður og þessi skattstofn komi í staðinn myndu þessar breytingar hafa í för með sér umtalsvert tekjutap fyrir ríkið frá því sem að öðru leyti hefur verið ákveðið.
Þetta er mín yfirferð yfir þær breytingartillögur sem hafa verið lagðar hér fram. Annars legg ég til að breytingartillögur meiri hlutans verði samþykktar og þakka góða umræðu við 2. umræðu og hlakka til að heyra sjónarmið þingmanna hér.