breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Hér standa yfir margar atkvæðagreiðslur í dag og í gær. Mér hefur gengið illa að fá svar frá forseta Alþingis þess efnis hvað má segja í þingsal og hvað má ekki segja. Samkvæmt þingskapalögum má ekki kalla hluti eins og „heyr, heyr“. Það er ákveðin stemning í því og klárlega lyftir það ákveðnum aðilum sem eru að tala, en það er svolítið skrýtið þegar helmingur þingsalsins virðir þessar reglur en ekki hinn. Því spyr ég: Lítur forseti svo á að það megi segja „heyr, heyr“? Má segja „bang, bang“? Hvað má segja, frú forseti? Mig hefur langað til að ræða það.