157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér við 3. umræðu fyrsta skattorminn sem hefur kannski flestar kerfisbreytingar og skattahækkanir í för með sér og við höfum verið að gagnrýna það hvað það er komið hér bratt inn í þessu máli. Það er fjöldinn allur af skattahækkunum sem var lagður til hér við 1. umræðu sem þurfti mikla umræðu um og vantar kannski miklu meira áhrifamat á. Eina sem ríkisstjórnin lagði áherslu á var hversu mörgum krónum í kassanum hver og ein myndi skila, en áhrifin og afleiðingarnar af þessum kerfisbreytingum voru ekki metnar til fulls. Við fengum að vísu fullt af ábendingum í meðförum nefndarinnar um möguleg áhrif og vænt áhrif af þessu en því miður hefur ekki verið brugðist við því. Ég hef því lagt til breytingartillögu við þetta mál milli umræðna eða fyrir 3. umræðu þar sem vörugjöldin, sem er hér heil kerfisbreyting sem var hvergi búið að boða áður, og þeir aðilar sem eru að kaupa ný ökutæki þurfa oft að gera ráðstafanir, t.d. þeir sem stunda innflutning á slíkum ökutækjum og kaupa þau í einhverju magni eða kaupa þau til endursölu þurfa oftast að gera áætlanir nokkra mánuði fram í tímann, jafnvel ár fram í tímann, þannig að það sem á að seljast næsta vor var kannski pantað í júní. Þeir aðilar sáu þennan bandorm lagðan fram af ríkisstjórninni í byrjun september. Þá sáu þeir hvaða tekjur ríkisstjórnin ætlaði sér að fá og hvernig, þegar þeir sáu tekjuforsendur fjárlaganna birtast í þessu frumvarpi sem við ræðum nú. Þeir hófust handa við að gera umsagnir og ráðstafanir og annað gagnvart þessu og meta áhrifin.

Svo birtist það eins og blaut tuska framan í marga hér 17. október, rúmum mánuði síðar, eftir að 1. umræða hafði farið fram, eftir að umsagnarfresti var lokið í málinu og nefndin komin vel af stað að vinna málið, þá kemur hér minnisblað þar sem kynntar eru stórvægilegar kerfisbreytingar á vörugjöldunum sem setja öll innkaupaáform, öll söluáform og allar áætlanir í uppnám, allt í uppnám. Það er bara gert án þess að blikka auga. Okkur vantar 7,5 milljarða í eyðslufylleríið. Við getum ekki hafið útgjöldin, segir ríkisstjórnin og setur þetta því bara svona fram. Þá komu strax fram athugasemdir um það að fyrirhuguð áform væru ekki rétt útfærð, væru bara alls ekki rétt útfærð. Það var bent á það ítrekað í meðförum nefndarinnar varðandi það hvernig útblástur ökutækja er mældur og hvaða mælieining er nýtt, mælieining sem getur breyst út frá öðrum forsendum en skattlagningu og þess vegna hefur höfundur þeirra eða Evrópusambandið beint því til þeirra ríkja sem eru að nýta sér þessa mælieiningu, sem við gerum þar sem við erum í EES-samningnum, að hún sé ekki ætluð til skattlagningar. Ekki var hlustað á þessa athugasemd. Ekki var brugðist við þessari athugasemd og út af þeim breytingum sem eru gerðar á vörugjöldum þá mun þessi athugasemd skipta enn meira máli af því að það er gerð miklu strangari krafa um hvernig útblástur frá ökutækjum er mældur. Það er gerð miklu strangari krafa þar og allur útblástur í umferð umfram lágmarkið er margfaldaður með hærri stuðli, þannig að þetta hefur tvöföld vond áhrif. Svo þegar skráningin breytist eftir því á hvaða tímabilum sams konar ökutæki eru skráð á götuna, þá kemur þriðja íþyngjandi ákvörðunin, það er þrítryggt hversu vont þetta er. Þá kemur hér langt og rökstutt mál um að þetta sé brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár. Það er hvergi, alls ekki við 1. umræðu málsins og ekki heldur í 2. umræðu, ekki í neinum nefndarálitum eða neinu rökstutt af hverju þetta sé sanngjörn mismunun eftir því hvenær ökutækið er skráð, sams konar ökutæki úr sömu framleiðslulínu geta verið að borga mismunandi vörugjöld. Þau menga alveg eins, þetta er nákvæmlega sama ökutækið en bara skráningin á því hversu mikið þau menga er breytileg eftir tímasetningu, hvaða reglugerð gilti þegar þau voru skráð, hvaða tilskipunin gilti þegar þau voru skráð á götuna. Þau eru rukkuð hvort á sinn hátt. Þetta er rökstutt að sé brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, samt bregst meiri hlutinn ekki við. Því hef ég lagt fram breytingartillögu sem samin var í fjármálaráðuneytinu við málið til þess að gera þetta þá alla vega í það minnsta löglegt. Maður spyr sig hvað maður eigi að ganga langt í að bjarga andliti stjórnarmeirihlutans hérna en ég bara sem þjóðkjörinn einstaklingur get ekki annað en lagt þessa breytingartillögu fram til að verjast því að Alþingi Íslendinga samþykki einhver lög sem brjóta gegn stjórnarskrá Íslands. Ég bara hef ekki leyfi til þess að leyfa því að gerast óátalið, bara alls ekki, og hef því lagt þessa breytingartillögu fram.

Ég lagði líka aðra breytingartillögu fram við vörugjöldin og hún er sú að tjaldvagnar og hjólhýsi séu undanþegin vörugjöldum eins og er alls staðar á Norðurlöndunum. Ég trúi því ekki að það eigi að fara að hækka vörugjöld á frístundir Íslendinga sem ferðast innan lands upp í 20%. Þess skal getið að öll þau hjólhýsi, tjaldvagnar og ferðavagnar sem verða seldir í vor voru pantaðir í sumar. Það var búið að panta þetta fyrir löngu síðan, löngu áður en vitað var að þessi hækkun á vörugjöldum kæmi. Því hef ég lagt þetta fram. Það eru fleiri mikilvægar breytingar sem þyrftu að verða á vörugjöldunum en þær breytingartillögur hafa flestallar verið felldar nú þegar og því ekki hægt að flytja þær aftur hér við 3. umræðu nema nefndin geri það eða stjórnarþingmenn þannig að það verði gerð sambærileg breytingartillaga sem er hægt að samþykkja. Ég biðla því til meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar að gera það. Það eru breytingartillögur eins og að allt mótorsport sé undanþegið vörugjöldum eða tæki sem eru nýtt í keppni. Það er mikill vöxtur í íslensku mótorsporti núna, sérstaklega hjá yngstu kynslóðinni, frá 11 ára og upp úr. Það eru oft krakkar, börn, sem finna sig ekki í hópíþróttum en finna sig þarna í þessari íþrótt, taka þá virkan þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Að sjálfsögðu finnur ríkisstjórnin allt því til foráttu og hækkar vörugjöldin á þennan hóp. Það er líka hópur barna sem verður fyrir barðinu á kílómetragjaldinu, sem þurfa að ferðast um langan veg til að fara á íþróttakeppnir. Þau þurfa núna að borga meira fyrir ferðalög milli landshluta þar sem bílaleigubíllinn hækkar bæði í innkaupum fyrir rekstraraðilann, sem kallar á hærri útleigu, en það kemur líka kílómetragjald sem kallar á hærri útleigukostnað. Ég held að ein bílaleigan hafi upplýst að hún sé með samninga við um 110 íþróttafélög. Þeir samningar eru í hættu núna þegar verið er að setja milljarða álögur á ferðaþjónustuna hér í þinginu í þessu frumvarpi sem við ræðum hér og með kílómetragjaldinu sem var nú rétt í þessu tekið af dagskrá, en ég á mikið ósagt í því máli og er líka með breytingartillögu þar sem ég þarf að fá að mæla fyrir.

Það er samdráttur í íslensku efnahagslífi núna, það er samdráttur. Hvernig bregst ríkisstjórnin við þessum samdrætti? Það er að aukast atvinnuleysið, fólk er að missa vinnuna núna í aðdraganda jóla. Atvinnuleysið eykst mánuð fyrir mánuð. Hvernig bregst ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur við þessu? Hvernig bregst hún við þessu? Jú, með hærri álögum, fer dýpra í vasa fólksins, dýpra í vasa fyrirtækjanna sem kallar ekki á neitt annað en að segja upp styrktarsamningum við íþróttafélögin, draga úr fjárframlögum til almannaheillafélaga, fækkun á starfsfólki, minni markaðskostnaður fyrir landið. Það þýðir færri ferðamenn og kakan smátt og smátt minnkar og minnkar. Fólk missir lífsviðurværið, missir vinnuna. Eru það forstjórarnir sem missa vinnuna? Halda virðulegir stjórnarþingmenn að það séu forstjórarnir og yfirmennirnir sem missa vinnuna? Nei, það er fólkið á gólfinu sem missir vinnuna. Við sjáum það eftir íþyngjandi álögur sumarsins, hækkun veiðigjalda, að þar misstu fiskvinnslukonurnar vinnuna. Núna á að senda fólkið í ferðaþjónustunni heim.

Það er sama hvaða umsagnir koma, þótt allir umsagnaraðilar tali gegn þessum áformum hæstv. ríkisstjórnar, svo lengi sem þetta kostar einhvern smápening, þá er ríkisstjórnin svo blönk, hún er svo blönk að hún getur ekki einu sinni brugðist við því að afstýra stjórnarskrárbroti. Það getur verið erfitt að vera blankur. Þá hjálpar ekki að þurfa að borga hærri skatta, missa vinnuna, missa styrkina. Ég vona alla vega að hæstv. ríkisstjórn taki hér síðasta sólarhringinn eða sólarhringana áður en þingið fer heim í jólafrí og endurskoði aðeins sinn gang, endurskoði aðeins stöðuna, sjái hvort það sé ekki of langt gengið gegn heimilunum í landinu, gegn atvinnulífinu og gegn fyrirtækjunum í landinu. Í upphafi skal endinn skoða.