breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég ætla svo sem ekki að hafa mörg orð í 3. umræðu um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, en koma aðeins hingað upp og ræða nokkra punkta sem við höfum verið að benda á að væri skynsamlegt að endurskoða og fara aðeins dýpra í. Fyrst langar mig að nefna varðandi verðlagsuppfærslu á krónutölusköttum sem er 3,7% í frumvarpinu. Við í Framsókn og fleiri höfum verið að benda á að það væri betra og skynsamlegra að fara í 2,5% þannig að þetta myndi halda og styðja við og vera á pari við verðbólguviðmið Seðlabankans og stuðla þannig að því að þetta tali betur við peningamálastefnu Seðlabankans sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt í því stóra markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu á næsta ári, sem því miður, virðulegur forseti, virðist vera erfitt verkefni og hefur reynst erfiðara en menn ætluðu. Við sjáum í fjárlagafrumvarpinu þar sem verðbólguhorfur á næsta ári eru að fara úr því að vera 3,2% í 3,5%. Þótt verðbólgan hafi farið niður í síðasta mánuði er það mat þeirra greiningaraðila sem ég hef alla vega séð að verðbólga muni fara aftur upp núna í desember og haldi áfram að fara upp í jafnvel janúar líka. Það eru því ekki góð tíðindi að verðbólgan sé á uppleið frekar en hitt en ég er alveg sannfærður um að þessi breyting, að fara með þetta niður í 2,5%, hefði stutt betur við það markmið sem ég held að við öll hér í þessum þingsal séum sammála um, heldur en að hafa þetta í 3,7%. Ég velti því fyrir mér líka með 3,7% miðað við 3,5% verðbólgu. Ég vil benda á þetta hér í restina og hvet meiri hlutann að sjálfsögðu til að reyna að verða við þessari breytingu.
Ég fagna sóknargjöldunum. Það var jákvætt og gott að nefndin skyldi koma sér saman um það að festa þá tölu og hækka hana frá því sem var í frumvarpinu. Svo, virðulegur forseti, er ekki hægt að tala um þetta frumvarp öðruvísi en að ræða um vörugjöldin. Ég ætla svo sem ekki að eyða tíma í það að fara að tala um hvernig vörugjöldin komu inn. Auðvitað er það mjög sérstök afgreiðsla að þetta verði í raun til í nefndinni. Við sáum það í fjárlagafrumvarpinu að gert var ráð fyrir 7,5 milljörðum í vörugjöld. Útfærslan var ekki tilgreind þar og það er í raun nefndin sem útfærir þessa 7,5 milljarða kr. skattahækkun. Það hefði að sjálfsögðu verið miklu betra ef það hefði komið frumvarp um það sérstaklega, um hækkun vörugjalda, þar sem þetta hefði verið útlistað og nefndin hefði þá haft meiri tíma og betra svigrúm til að vinna það. Hitt er síðan annað mál að það er alveg ljóst að þessi vörugjöld munu ekki koma í ríkissjóð. Þessir 7,5 milljarðar sem áætlaðir eru hér í hækkun á vörugjöldum munu ekki skila sér. Það held ég að séu nú allir sammála um nema kannski fjármálaráðuneytið sem virðist vera erfitt viðureignar í að fá sundurliðun á því og endurútreikning á því hvernig vörugjöldin eru reiknuð. Þegar við vitum af því og nefndin hefur fengið til sín umsagnaraðila, m.a. frá bílaleigum, sem hafa beinlínis sagt það að innflutningurinn sé með þeim hætti núna fyrir áramót, til þess að ná hagstæðari kjörum á þessum bílum og þurfa ekki að borga af þeim vörugjöld eftir áramót, tölurnar sem við höfum heyrt eru í kringum 2.000 bílar jafnvel sem bílaleigurnar eru að reyna að ná inn fyrir áramót, þá er það alveg ljóst, virðulegur forseti, að þeir bílar munu ekki bera vörugjald á næsta ári. Eins höfum við haft spurnir af því og fregnir af því að það sé mikil aukning í bílasölu almennt, að fólk sem hugðist skipta um bíl eftir áramót sé að nýta færið núna fyrir áramót. Auðvitað er það ekkert óþekkt. Við þekkjum það öll að svona skattalagabreytingar kalla á breytta kauphegðun. Við sáum það í nikótínmálinu þar sem við hækkuðum gjaldið á nikótínpúða og ætluðum að ná inn ákveðnum tekjum fyrir það sem var náttúrlega bara til þess að fólk breytti og neyslan varð minni, sem var náttúrlega jákvætt og var m.a. það sem átti að ná fram með frumvarpinu en tekjurnar sem ríkissjóður átti að fá út af þessari hækkun skiluðu sér ekki. Það er alveg ljóst í mínum huga að sömu lögmál eru að verki hér í þessu vörugjaldafrumvarpi.
Það var svolítið sérstakt að nefndin var margítrekað búin að óska eftir því að ráðuneytið myndi fara í það og endurmeta vörugjöldin miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir í nefndinni. Í fyrstu svaraði ráðuneytið okkur því til að það væri engin ástæða til þess, það sæi ekki ástæðu til að endurmeta þetta. Síðan kom nú svar loksins í gær, held ég, frekar en í fyrradag þar sem þetta var í raun og veru metið með þeim hætti að þetta hefði engar afleiðingar og ráðuneytið fór undan í flæmingi að leggjast af einhverri alvöru í vinnu við að endurmeta vörugjöldin. Öllum er hins vegar ljóst að þetta fjármagn mun ekki skila sér inn til ríkisins að fullu á næsta ári. Þetta náttúrlega breytir verulega miklu í tekjuforsendum fjárlaganna eins og við höfum bent á og við höfum verið að benda á veikleikana í tekjuforsendunum. Þetta er m.a. einn af stóru veikleikunum þar. Þó að þetta séu ekki háar upphæðir í stóra samhenginu, í 1.600 milljarða kr. fjárlögum eru 7,5 milljarðar kannski ekki stóru peningarnir, en þegar stríðið stendur við að reyna að halda hér einhvers konar stöðugleikareglu þá er það náttúrlega alveg ljóst að þetta hefur veruleg áhrif þar inn þar sem stöðugleikareglan hangir nú á 15 millj. kr. og fer lækkandi, fór úr 28 millj. á nokkrum dögum í 15, þannig að kannski er þar skýringin komin á því af hverju menn vilja ekki endurmeta þessi vörugjöld.
Ég hef líka bent á það, virðulegur forseti, að mér finnst það ámælisvert og bara verulega ámælisvert að þegar þingnefnd sendir erindi til ráðuneytisins og óskar eftir því að fá endurmetið einhverja liði, hvort sem það eru vörugjöld, veiðigjöld eða hvað sem er, sóknargjöld þess vegna, ef þingnefnd óskar eftir því að fá gögn og svarið sem kemur úr ráðuneytinu er: Við sjáum ekki þörf á því. Virðulegur forseti. Það var ekki það sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd var að óska eftir. Efnahags- og viðskiptanefnd var ekki að óska eftir því hvort ráðuneytið teldi eða teldi ekki þörf á því að endurmeta vörugjöldin. Hún var að óska eftir því að fjármálaráðuneytið myndi fara í að endurmeta vörugjöldin. Ég hef bent á það að mér finnist það mjög sérkennilegt og eitthvað sem ég held að virðulegur forseti þingsins ætti að taka til skoðunar og taka til sín. Að sjálfsögðu er það alvarlegur hlutur ef beiðnir þingsins og þingnefnda eru ekki teknar alvarlega í ráðuneytunum og reynt með einhverju móti að gera lítið úr þeim beiðnum eða ekki orðið við þeim.
Síðan er annað mál sem ég held að þurfi endurskoðunar við, sem er samnýting skattþrepa. Þetta er vont mál, virðulegur forseti. Þetta er vont mál og ég skora á hæstv. ríkisstjórn og meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að nota þessar síðustu mínútur sem eftir lifa af þessu þingi til að leiðrétta þetta. Ég er ekki mjög bjartsýnn á að það verði. Við erum búin að eiga mikið samtal um þetta inni í efnahags- og viðskiptanefnd. Við höfum átt samtöl um þetta hér inni í þingsalnum en lítið hefur verið gert með okkar áhyggjur. Ég hef bara áhyggjur af þeim heimilum, var ekki verið að tala um að þetta væru um 13 þús. heimili sem þarna eru undir, sambýlisfólk og hjón sem hafa verið að nýta þessa heimild sem munu ekki geta nýtt hana eftir áramót? Þarna er því enn eitt dæmið þar sem er verið að seilast í vasa venjulegs fólks. Þetta er bara venjulegt fólk og þó að þetta komi að einhverju leyti kannski illa við íbúa í Garðabæ þá þekki ég nú marga Garðbæinga sem eru bara venjulegt fólk líka.
Við höfum gert athugasemdir, virðulegur forseti, við hækkun skrásetningargjalda í opinbera háskóla. Þau eru að hækka. Þar vantar allar greiningar á bak við. Þó að gjaldið hafi ekki verið hækkað síðan 2013 og fari úr 75 þús. í 100 þús. kr., sem er kannski ekki mikil hækkun en samt, þá finnst mér að þegar við erum að hækka skatta og gjöld á almenning, sérstaklega á ungt fólk eins og í þessu tilfelli, verðum við að hafa almennilegar greiningar og gögn á bak við þannig að við getum séð hvaða áhrif þetta mun hafa á þessa hópa.
Ég fagna síðan þessari lækkun á innviðagjaldinu. Af því að ég var að ræða hér áðan um svör ráðuneytisins varðandi beiðni efnahags- og viðskiptanefndar þá var það nú þannig að þegar nefndirnar fyrir ári síðan voru að ræða að setja innviðagjald á skemmtiferðaskip og menn höfðu þessar sömu áhyggjur og við höfum núna hvaða áhrif þetta myndi hafa á ferðaþjónustu á landsbyggðinni, hvaða áhrif þetta myndi hafa á sveitarfélögin og hafnirnar, þá var svar ráðuneytisins, þeirra mat, að þetta myndi ekki hafa nein áhrif. Nú höfum við séð að það var heldur betur ekki rétt mat og ég fagna því að við séum að laga þessa skekkju sem klárlega var gerð á síðasta þingi undir síðustu ríkisstjórn. Ég tek fulla ábyrgð á því sem meðlimur í henni en fagna því, eins og ég segi, að við séum að stíga þetta skref til baka og vona að það verði nægjanlegt til að koma þessu aftur í rétt horf.
Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra hér. Að endingu, í væntanlega minni síðustu ræðu hér um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, þakka ég nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir afskaplega gott samstarf, bæði í minni og meiri hluta, og hlakka til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða okkar á næsta þingvetri í þeirri háttvirtu og góðu nefnd.