157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
fundur um kílómetragjald.
Mig grunar að hv. þingmaður hafi verið að tala um efnahags- og viðskiptanefnd þegar hann sagði atvinnuveganefnd. Eins og hv. þingmenn vita þá er sá sem hér stendur 2. varaforseti Alþingis. Varðandi þær áskoranir að halda fund sérstaklega inni í umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd er ekki undir þeim komið sem hér stendur en þeirri áskorun verður svo sannarlega komið á framfæri. Og hér er einnig viðstaddur hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar.