157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hluta fjárlaganefndar fyrir 3. umræðu frumvarpsins og vil sérstaklega nota tækifærið til að þakka nefndarmönnum fyrir gott samstarf í nefndinni núna í haust og vetur. Í álitinu er gerð grein fyrir heildartölum um áætlaða afkomu ríkissjóðs á næsta ári. Gert er ráð fyrir að samtals verði tekjur ríkissjóðs 1.593 milljarðar kr. og útgjöldin 1.621 milljarður kr. Miðað við þetta er áætlaður 28 milljarða halli á ríkissjóði á næsta ári eða sem nemur 0,5% af vergri landsframleiðslu, tæplega þó. Það er um 700 millj. kr. lakari útkoma en miðað var við eftir 2. umræðu frumvarpsins og áætlað er að skuldir ríkissjóðs samkvæmt skuldareglu laga um opinber fjármál verði 37,4% af vergri landsframleiðslu í lok næsta árs. Þessi áætlun er innan þeirra marka samþykktrar fjármálastefnu sem miða við að hallinn verði að hámarki 0,5% af vergri landsframleiðslu á næsta ári. Raunvöxtur útgjalda frá fjárlögum að teknu tilliti til tekjuráðstafana og undanskilinna liða er innan við 2% í samræmi við stöðugleikareglu laga um opinber fjármál.

Gerðar eru tillögur til lækkunar tekna sem samtals nema tæpum 6 milljörðum. Þar munar langþyngst um nýja áætlun um álagningu veiðigjalda sem lækkar áætlunina úr 20 milljörðum í 13 milljarða eða um 6,7 milljarða. Endurmatið byggist m.a. á nýjum aflamarksforsendum, nýju mati á áhrifum lagabreytinga sem samþykktar voru á síðasta þingi og breytingum á fjárhæðum veiðigjalds fyrir hvern nytjastofn. Aðrar tekjubreytingar vega minna. Áætlað er að verkefni Skattsins um eflingu samtímaskatteftirlits, milliverðlagningareftirlits og stórfyrirtækjaeftirlits, samhliða eflingu skattrannsókna, muni samtals skila 1,1 milljarði í auknar tekjur. Tekjur af jöfnunargjaldi raforku eru lækkaðar um 1,1 milljarð til samræmis við breytingartillögur við frumvarp um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. Miðað er við 27% hækkun gjaldskrár í stað 100% eins og í fyrri forsendum. Á móti er gert ráð fyrir samsvarandi lækkun útgjalda þannig að breytingin hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Loks eru áætlaðar 1,1 milljarða hækkanir vegna laga um aukatekjur, tekjur ríkissjóðs sem eru endurskoðaðar miðað við verðbólguþróun og breytingar á gjöldum fyrir þjónustu sýslumanna og Þjóðskrár Íslands.

Á gjaldahliðinni eru gerðar tillögur um samtals 5,3 milljarða lækkun gjalda af nokkrum tilefnum. Mest vegur 2,2 milljarða lækkun áætlaðra daggjalda hjúkrunarheimila. Það er mikill gangur í fjölgun hjúkrunarrýma en á undanförnum árum hefur dregist að taka í notkun ný hjúkrunarheimili og ónýttar fjárheimildir hafa því safnast upp á milli ára. Gerð er önnur tillaga um 2 milljarða lækkun gjalda vegna framkvæmda við nýjan Landspítala. Uppsafnaðar heimildir fyrri ára eru meira en 10 milljarðar og lækkun heimilda ætti ekki að hafa áhrif á gang verkefnisins. Þá er gert ráð fyrir að lækka framlag til byggingar nýrrar þjóðarhallar um 0,9 milljarða í samræmi við nýjar áætlanir um framvindu verksins. Í fimmta lagi er launa- og verðlagsbótaliður leiðréttur vegna endurmats á kostnaðaráhrifum kjarasamninga. Samtals leiða þessar breytingar til 1 milljarðs hækkunar gjalda á næsta ári. Loks eru gerðar nokkrar tillögur sem varða tæknilegar breytingar og millifærslur milli liða. Eins og ég nefndi áður er nú áætlað að gjöld ríkissjóðs verði um 1.621 milljarður kr.

Gerð er tillaga um breytingu á 5. gr., um lántökur, um að auka umfang hlutdeildarlána úr 4 milljörðum í 5,5 milljarða, samanber aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum sem kynntar voru í október síðastliðnum, en heildarendurlán til Húsnæðissjóðs haldast óbreytt í 20 milljörðum.

Meiri hlutinn fjallaði um 6. gr. fjárlaga en þar eru heimildir til handa fjármála- og efnahagsráðherra til að kaupa og selja fasteignir, jarðir og lóðir auk ýmissa annarra heimilda til samningagerðar. Í hagræðingartillögum ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að bæta fasteignaumsýslu ríkisins og ríkisstjórnin hefur líka lagt áherslu á að nýta ríkislóðir í stórauknum mæli til íbúðarbyggingar. Í stjórnarsáttmála er sett fram það stefnumið að auðvelda umbreytingu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði annars vegar og að nýta ríkislóðir í stórauknum mæli til íbúðarbyggingar hins vegar. Meiri hlutinn bendir á að samkvæmt svörum sem lögð hafa verið fyrir Alþingi séu um 60.000 m² af atvinnuhúsnæði í eigu ríkisins sem standi auð að hluta eða í heild og lagt er til að hraða vinnu við að meta hverjar þessara eigna henti til þróunar yfir í íbúðir. Nokkrar heimildir eru nú þegar í fjárlagafrumvarpinu sem tengjast þessum fasteignum og markmiðum en meiri hlutinn bendir á fleiri eignir í álitinu sem byggja á áðurnefndu svari. Sama á við um fjölmargar lóðir og byggingarlönd í eigu ríkisins. Meiri hlutinn bendir á að gott sé og nauðsynlegt að kynntar verði viðbótarlóðir á byggingarlandi í tengslum við annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem henti til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Sérstaklega ætti að meta í hvaða tilvikum sé áhugavert að óhagnaðardrifin félög takist verkefnin á hendur, að hluta eða í heild, í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um félagslega blöndun íbúðauppbyggingar. Þetta gildir einnig um land Keldna sem ríkið hefur afsalað inn í félagið Betri samgöngur til að fjármagna hluta samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Meiri hlutinn gerir, til að fylgja þessu eftir, tvær tillögur sem viðbót við 6. gr. fjárlaga. Annars vegar að selja að öllu leyti eða hluta fasteignir og lóðir ríkisins við Lindargötu, Skuggasund og Sölvhólsgötu í Reykjavík og einnig við Spítalaveg í Garðabæ. Ekki þarf þó að vera að öll heimilisföng í eigu ríkisins við þessar götur falli undir þetta. Hins vegar er nefnt að selja að öllu leyti eða hluta lönd eða lóðir til sveitarfélaga og/eða óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga þannig að uppbyggingin geti orðið að veruleika innan laga um almennar íbúðir.

Að lokum, um leið og ég ítreka þakkir til nefndarmanna, legg ég til að Alþingi samþykki breytingartillögur meiri hlutans sem eru í fjórum þingskjölum, tekjur ríkissjóðs, gjöld, breyting á 5. gr. um lánamál og tvær breytingar, eins og áður segir, um 6. gr., um heimildir til að selja fasteignir og lóðir.