157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Þá höldum við áfram umræðu um það sem ég hef kosið að kalla í fyrri ferðum mínum hér skattaflækjufrumvarpið. Mig langar að byrja þessa ræðu, frú forseti, á að víkja stuttlega að í framhaldi af fundarstjórn forseta hér í dag, þar sem voru orðaskipti um umsögn og tölvupósta sem bárust okkur fulltrúum í efnahags- og viðskiptanefnd og hlutust af því nokkur orðaskipti, var kallað eftir því að efnahags- og viðskiptanefnd yrði kölluð saman vegna þessa. Hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir blandaði sér í þá umræðu og sagði að til stæði að halda fund í nefndinni í fyrramálið. Sá fundur hafði raunar verið löngu boðaður og átti að fjalla um allt aðra hluti. Eftir þetta barst svo minnisblað frá, ég held að ég orði það bara þannig, fulltrúa úr skattadeild fjármálaráðuneytisins þar sem í raun og veru þessum spurningum sem voru til umræðu varðandi galla sem var í kerfinu var svarað og fullyrt var að hefði verið lagaður. Ég ætla svo sem ekkert að rengja að nákvæmlega sá galli hafi verið lagaður en hann var þó aðeins einn af fjölmörgum sem sá aðili úr atvinnulífinu sem átti hlut að máli í þessum tölvusamskiptum hafði ítrekað bent á.

Mig langar að velta því upp, frú forseti, hvort það hefði verið eðlilegra að kalla fundinn saman strax í ljósi þess hversu alvarlegar ábendingar þetta voru. Eins þykir mér nokkurri furðu sæta að það skuli koma minnisblað úr fjármálaráðuneytinu til að svara fyrir það að þetta sé í lagi og muni virka og að þessi tiltekni galli hafi verið yfirfarinn. Þetta er svona eins og að spyrja einhvern sem heldur einhverju fram með tölvupósti: Hefur þú örugglega rétt fyrir þér? Og hann sendir til baka: Já, ég hef rétt fyrir mér. Þetta eru svona svolítið þannig samskipti. Ég velti hins vegar fyrir mér: Hver svarar þá fulltrúa frá Bílaleigu Akureyrar sem var aðili að þessum samskiptum og var með þessar ábendingar? Ég geri ekki ráð fyrir að þetta minnisblað hafi verið sent á viðkomandi.

Eins velti ég fyrir mér hvort það hefði ekki verið eðlilegra að efnahags- og viðskiptanefnd hefði óskað eftir því að Skatturinn staðfesti þennan skilning fjármálaráðuneytisins varðandi verklag kerfisins því það er Skatturinn sem kemur til með að sjá um að innheimta þetta, ekki fjármálaráðuneytið. Staðfestingin á því að þetta ferli muni virka verður eiginlega að koma frá Skattinum en ekki frá starfsmanni í ráðuneytinu. Ég held að allir hafi gert sér grein fyrir því að það svar myndi verða jákvætt, þ.e. jákvætt í þeim skilningi hugtaksins að þau telja að sjálfsögðu að þetta muni virka og þess vegna eru þau að fara fram með málið.

Þetta, frú forseti, varðaði hins vegar aðeins einn þátt af mörgum sem gerðar voru athugasemdir við í erindi frá fulltrúa Bílaleigu Akureyrar. Ég trúi ekki öðru en að á fundi efnahags- og viðskiptanefndar verði óskað eftir staðfestingu frá Skattinum um að þeir, ef ég leyfi mér að orða það svo, heilbrigðisvotti þessa fullyrðingu frá starfsmanni fjármálaráðuneytisins. Verði það ekki gert þá er, eins og sagt var stundum í gamla daga áður en tölvupósturinn kom, þetta svar ekki pappírsins virði.

Einnig í þessu samhengi af því að ég er hér að tala um athugasemdir frá Steingrími Birgissyni, það er hann sem sendir þessar fjölmörgu ábendingar og punkta ásamt auðvitað fulltrúum mun fleiri aðila úr atvinnulífinu og fleiri aðila frá bílaleigum auk fjölda einstaklinga, þá birtist í gær í Vikublaðinu, sem gefið er út á Akureyri, viðtal við áðurnefndan Steingrím Birgisson. Það er dálítið fróðlegt viðtal en áður en ég vík að því, frú forseti, þá er það sem ég er búinn að vera að fara yfir varðandi samskiptin við efnahags- og viðskiptanefnd og samskipti efnahags- og viðskiptanefndar við ráðuneytið og skortinn á aðkomu Skattsins að túlkun á þessu, rétt að hafa í huga. Þessi grein er unnin upp úr viðtali við Steingrím Birgisson og er afar áhugaverð. Ef rýnt er í efni þeirrar greinar þá kemur enn og aftur fram hversu gríðarlegar áhyggjur atvinnulífið hefur, og einstaklingar að sjálfsögðu líka, af því að þetta kerfi sé tilbúið og muni virka eins og fullyrt er af ráðuneytinu og fulltrúum meiri hluta hér í salnum ásamt auðvitað formanni efnahags- og viðskiptanefndar, Örnu Láru Jónsdóttur.

En með leyfi forseta, örstutt, því þetta er nú afar takmarkaður tími:

„Að sögn Steingríms Birgissonar verður höggið fyrir Höld-Bílaleigu Akureyrar afar þungt og er fyrirtækið nú þegar farið að búa sig undir álögur upp á nokkur hundruð milljónir sem vel væri hægt að koma í veg fyrir með samtali á milli greinarinnar og ráðherra.“

Hér kristallast það sem hefur komið fram í máli fleiri þingmanna en þess sem hér stendur og er kunnuglegt stef, þ.e. skortur á því að tekið sé tillit til þeirra stóru athugasemda sem hafa borist. Vissulega geri ég mér grein fyrir því að það hafa orðið breytingar á frumvarpinu. En í stóra samhenginu, vegna þess hversu viðamikið frumvarp er hér á ferðinni og gríðarleg kerfisbreyting, þá er þetta bara svo lítið í stóra samhenginu. Svo vitnað sé aftur, með leyfi forseta, í þetta samtal milli blaðamanns og Steingríms Birgissonar þá segir hér:

„Hér er verið að þröngva í gegnum þingið þremur frumvörpum sem öll eru gríðarlega íþyngjandi fyrir rekstur bílaleiga á Íslandi. Kílómetragjaldið, hækkun vörugjalda á bifreiðar, auk afnáms virðisaukaskattsívilnunar fyrir bílaleigur.“

Ég gæti varið meiri tíma, frú forseti, í að fara í gegnum þetta viðtal, þessa frétt, en ég hvet fólk til að kynna sér hana. Þetta birtist í Vikublaðinu í gær þar sem þessu eru gerð mjög góð skil út frá sjónarhóli bílaleigunnar og ferðaþjónustunnar fyrst og fremst en það er fjöldi annarra atvinnugreina sem hefur miklar áhyggjur af þessu máli. Ég nefni til að mynda hina fjölmörgu verktaka, t.d. í jarðvegsgeiranum. Þar veit ég um dæmi um fyrirtæki sem eru að tikka í box þessara 29 gjaldaliða, mig minnir að þeir séu 29. Eitt og sama fyrirtækið er að tikka í svona velflest boxin vegna þess að oft er það þannig, og sérstaklega, frú forseti, úti á landi, að til að vera í verktöku úti á landi þarftu að vera ofsalega fjölhæfur. Hér á höfuðborgarsvæðinu er hugsanlega hægt að framfleyta sér og nokkrum starfsmönnum með því að sérhæfa sig í t.d. drenlögnum og vera þá bara í þeim með einn vörubíl, eina mínígröfu og svo er nú það kallað hjólbörur — þeir sem eru í greininni vita hvað ég er að tala um — til að koma efninu úr garðinum og í átt að vörubílum eða eitthvað slíkt. Það er alveg hægt að finna svona sérhæfingar í svona stóru umhverfi. En úti á landi er þetta bara víðast hvar þannig að verktaki sem ætlar að lifa af og veita einhverjum ákveðnum fjölda starfsmanna heilsársvinnu þarf að haka í öll boxin. Hann þarf að vera með dráttarvélar, haugsugu, sturtuvagna, vörubíla, hjólaskóflur, beltavélar, hjólavélar, sem kallaðar eru hjólagröfur, jarðýtur o.s.frv.

Líklega komast verktakarnir í flestum tilfellum upp með að sleppa því að vera með mótorhjól sem þó fá líka á baukinn í þessu frumvarpi þrátt fyrir að það hafi verið ítarlega rökstutt að niðurbrotskraftur mótorhjóls er vart mælanlegur og hefur þannig ekki áhrif á burðarlag vegarins. Hugsanlega mætti mæla slit á yfirborði eftir tugþúsundir eða hundruð þúsunda hjóla en það er svo fjarstæðukennt að það telst varla til. En það eru samt 4,15 kr. sem leggjast á hvern ekinn kílómetra mótorhjóla.

Í dæmi slíks verktaka gildir í raun og veru það sama að mörgu leyti og kemur fram í umsögnunum hjá bílaleigunum að flækjustigið í frumvarpinu — fyrir utan það að menn hafa að sjálfsögðu miklar áhyggjur af því, eins og birtist í umræðum undir liðnum fundarstjórn forseta í dag, að kerfið sé einfaldlega ekki tilbúið til að ráða við allar þessar fjölbreyttu útgáfur. Dæmin eru nú þegar farin að koma um rafbíla jafnvel þó að þar sé aðeins um örfáa bíla að ræða miðað við þau ósköp sem eru að dynja yfir núna. Slíkur verktaki þarf jafnvel að bæta við sig stöðugildi.

Verktakinn er kannski stór á sínu athafnasvæði, í sinni sveit í sínu litla bæjarfélagi, en hann er ekki stór á mælikvarðanum miðað við fyrirtæki á Íslandi almennt. Hann er agnarsmár. Hann tilheyrir jafnvel þessum flokki sem talinn er minnstur sem oft er talað um þar sem starfsmenn eru á bilinu 1 til 10. Eitt stöðugildi er þannig engin smáviðbót. Ef á að fara að bæta við einu stöðugildi til að halda utan um allan þennan tækjaflota og eiga samskipti við Skattinn, sem, eins og ég nefndi áðan, er ekki búinn að votta þetta svar ráðuneytisins, það skortir tilfinnanlega, þá erum við að demba hér inn á öll þessi fyrirtæki gríðarlegum aukakostnaði og ótrúlegu flækjustigi. Hugsið ykkur ef eitt og sama fyrirtækið nær kannski 20 gjaldflokkum, eitt lítið verktakafyrirtæki úti á landi.

Svo finnst mér eðlilegt að rifja upp í þessu samhengi að það er ástæða fyrir því að við fórum í það kerfi sem við erum í. Af því að bílaleigurnar hafa stundum verið nefndar, og m.a. hér í þessari ræðu, þá var það nú einu sinni þannig að menn leigðu bíla og þeim fylgdu ákveðið margir kílómetrar. Ef þú fórst umfram það þurftir þú að borga aukalega. Það hafði áhrif á hegðun leigutaka. Leigutakinn var mjög meðvitaður um að hann væri að greiða ákveðna upphæð fyrir bílinn en ef hann færi yfir þann skammt í kílómetrum sem fylgdi bílnum þá kæmi aukareikningur. Það hefur hegðunarbreytandi áhrif sem hefur ítrekað verið bent á, frú forseti, í umræðunni um þetta mál.

Það sem ég sakna líka svo tilfinnanlega í umræðunni er að ef, eins og öll rökin virðast vera hingað til, að rökstuðningurinn sé að það þurfi bara meira fé í viðhald samgöngukerfisins — sem ég er reyndar ósammála og hef rakið í fyrri ræðum mínum í þessu ferli, mjög ósammála. Í gegnum tíðina höfum við verið að innheimta mun meira af ökutækjum en við höfum skilað í samgöngubætur. En ef, af því ég hef verið spurður að þessu, staðan væri sú að það yrði að sækja meira fé til að geta hafið þessa sókn í uppbyggingu samgöngukerfisins þá væri, frú forseti, miklu heiðarlegra og einfaldara, meðan við bíðum eftir að þróunin gangi örlítið lengra, að segja bara hreint út, öfugt við það sem sagt var í upphafi þegar þetta mál var fyrst kynnt: Við ætlum að hækka skatta. Við ætlum að hækka skatta á vörubíla, dráttarvélar í ákveðnum flokki, þ.e. ekki til landbúnaðarnotkunar. Við ætlum að hækka skatta á mótorhjól og fjölskyldubílinn o.s.frv. Við ætlum að gera það á ódýrasta mögulega hátt. Við ætlum að hækka skatta með því að hækka krónutölu á eldsneytisgjaldið. Þá hefðum við fengið tekjurnar hreinar inn.

Nú erum við hins vegar að búa til kerfi sem verður mjög dýrt í rekstri þannig að stór hluti þeirra 3,3 milljarða sem er ætlast til þess að þetta skili mun fara í að reka kerfið sjálft. Það verður í raun og veru einn stór hluti af þessum tekjum sem verður engum til gagns nema hugsanlega að það skapi störf hjá einhverjum innheimtumönnum.