157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Ég átta mig á því að hún hefði viljað hafa hana mikið lengri. Þrátt fyrir að við séum að ræða þetta mál í 3. umræðu, og við erum búin að ræða það mikið, er alltaf að renna betur og betur upp fyrir manni hvurs lags óskapnaður þetta mál er í framkvæmd. Í mínum huga er þetta algjört dellumál. Ef menn hefðu viljað, eins og vinstri menn eru, hækka skatta og gjöld hefði það verið mjög auðveld framkvæmd, í staðinn fyrir að fara í það flækjustig að senda reikninga á 300.000 ökutæki á landinu með hundruð milljóna kostnaði fyrir bílaleigurnar, að hækka verðið á dælunni, hækka bara olíugjaldið. Það hefði ekki kostað það að [email protected] brynni yfir af tölvupóstum frá fyrirtækjum og einstaklingum sem voru að finna út úr því hvernig þeir ættu að skrá þetta kílómetragjald o.s.frv. Það hefði ekki þýtt að bílaleigurnar tækju á sig tugi og hundruð milljóna í vangreidd kílómetragjöld frá notendum sínum á næsta ári. Mig langar að spyrja hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur: Er hv. þingmaður ekki sammála þessari nálgun? Við erum löngu hætt að berjast fyrir því að hér verði lækkaðir skattar og gjöld, það virðist vera algerlega lífsins ómögulegt með þessa ríkisstjórn, en ef hún ætlar að hækka skatta, er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að best hefði verið fyrir hana að hækka olíugjaldið á dælunni og auðvelda lífið fyrir alla landsmenn og fyrirtækin í landinu?