157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:28]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég er sammála því. Það hefði verið einfaldast að halda óbreyttu kerfi. Í því kerfi borga þeir sem nota. Ef þú ert á stórum trukk þá þarftu meira bensín eða dísil og þú borgar fyrir það. Það kerfi hefði átt að fá að renna sitt skeið og ástæða er fyrir því að ekkert annað land hefur tekið upp kílómetragjald með viðlíka hætti. Þess vegna tek ég heils hugar undir þetta og langar að benda á að gjalddagi Skattsins verður oft áður en til að mynda bílaleigur, af því að um þær er rætt, fá greitt fyrir þjónustu sína. Bílaleigurnar leigja bílinn og þurfa að borga skattinn, búið er að skila bílnum en svo kemur kortauppgjörið mögulega seinna. Það er flækjustig á öllum sviðum. Auðvitað hefði þetta átt að vera á dælunni. Ef þau ætla að fara í þessa vegferð hefði átt að vera lykilpunktur að fyrirtæki geti framfylgt lögunum. Það er lykilpunktur ef þau ætla að fara í þessa slæmu vegferð. Það er ekki hægt að fara í hana vitandi það með opin augu að fyrirtækin sérstaklega geta ekki fylgt lögunum. Nú er alveg á hreinu að það er ekki hægt. Svo liggur líka fyrir að einstaklingar, eins og sagt var áðan, sem keyra til að mynda á bílunum sínum í Evrópu þurfa að borga kílómetraskatt fyrir það hér heima og veggjöld úti. Því er fullt af alls konar tvísköttun í frumvarpinu eins og það er núna.