157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:32]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Jú, það er mikill ábyrgðarhluti og við öll vorum blekkt með því að ríkisstjórnin ætlaði að setja það í forgang að ná niður vöxtum og verðbólgu. Meira og minna öll mál sem hingað koma stuðla að hinu gagnstæða, eins og þetta. Það er eiginlega sorglegt. Til að koma aðeins inn á það sem hv. þingmaður sagði um tapaðar kröfur þá ætlar ríkið ekki að taka neitt af þeim á sig. Beinn kostnaður bílaleigna á Íslandi er ekki talinn í tugum milljóna heldur fer sennilega yfir einhverja milljarða. Beinn kostnaður ríkisins verður mörg hundruð milljónir. Þetta kostar olíufélögin eitthvað og einstaklinga. Það er meiri kostnaður við stærra bákn. Ég vil minna á að í þessu frumvarpi eru ekki bara kílómetraskattar heldur einnig skattar á sjávarútveginn. Ég velti því fyrr upp hvort það geti verið að ríkisstjórnin, sem við vitum að er ekkert sérstaklega vel við sjávarútveginn, sé að fela einhverja kolefnisskatta á sjávarútveginn inni í þessu og því bitni það á öllum landsmönnum, öllum bifreiðaeigendum, að verið sé að reyna að ná meiru af sjávarútveginum. Væri ekki nær að skipta þessu upp? Skipin keyra ekki um á vegunum. Það má vera á hreinu nú þegar sjávarútvegurinn á undir verulega mikið högg að sækja þannig að fólk sjái hvað ríkisstjórnin er raunverulega að gera. Það held ég að væri nær af því að álögur á sjávarútveginn eru að verða, eins og kolefnisskattar, eins og einn togari á ári. Á hverjum bitnar þetta? Ekki bara á sjávarútveginum heldur öllum bifreiðaeigendum á landinu af því að nú er komið með eitthvert nýtt kerfi, svo flókið að ekki verður hægt að framfylgja því.