157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[13:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að halda langa ræðu um þetta. Það hefur hins vegar verið óheppilegt að umræðan um fjáraukann hefur alla jafna verið í skjóli nætur. En til að draga aðalatriði málsins fram þá er hér er um 100 milljarða kr. útgjöld að ræða. Það er rakið í frumvarpinu á bls. 45, ef ég man rétt, í greinargerðinni, hvert hlutverk fjáraukalaga er, og ég held að allir sem lesa útgjaldamál eftir tilefnum eða útgjaldatillögurnar á bls. 48 í frumvarpinu átti sig á því að þarna fer ekki saman hljóð og mynd, þ.e. að þetta er ekki í samræmi við hlutverk fjáraukalaga. Til að allrar sanngirni sé gætt geta menn fundið dæmi þess á undanförnum árum en mér er til efs að það sé jafn vel í lagt og hér er, hér er um 100 milljarða að ræða. En það kemur líka fram í frumvarpinu og í tengslum við það, sem skiptir máli, að afkoma ársins í ár, 2025, er miklu, miklu betri en fjárlögin gerðu ráð fyrir. Með öðrum orðum þá var gert ráð fyrir 63 milljarða kr. halla. Tekjurnar eru 73 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum, þannig að ef það hefði ekki komið til þessarar útgjaldaaukningar hjá hæstv. ríkisstjórn værum við að sjá afgang af fjárlögum þegar allt er gert upp núna í ár.

En áhyggjurnar eru þessar, virðulegi forseti, að við settum lög um opinber fjármál á sínum tíma til að bæta umgjörðina um opinber fjármál, til að ýta hér undir stöðugleika, ráðdeild og festu og um það var þverpólitísk sátt. Á þeim stutta tíma sem þessi ríkisstjórn hefur starfað byrjaði hún á því að brjóta lög um opinber fjármál. Það eru teknir út varasjóðir í fjárlögunum sem er liður í því að vera með sveigjanleika fyrir ráðuneytin og ná því markmiði sem lagt er upp með. Það er tilgreint í nefndaráliti minni hlutans að það var hreinlega farið í þessa breytingu til að hætta þessu sem var orðið plagsiður, að hafa fjáraukalög þar sem voru hlutir sem voru ekki óvæntir og ófyrirséðir. Þess vegna voru m.a. varasjóðirnir settir á. Í hagræðingarskyni, og það er auðvitað engin hagræðing, hefur ríkisstjórnin tekið þá út og í ofanálag koma þessi fjáraukalög eins og þau eru hér með 100 milljarða kr. útgjaldaaukningu og svo það sé sagt þá hefðu nær flest, ef ekki öll, þessi útgjöld átt að vera í fjárlögunum sem hefði auðvitað þýtt það að halli á fjárlögunum hefði verið miklu meiri, þ.e. í fjárlögum 2026. Þetta er áhyggjuefni og við sjáum það strax á þessu fyrsta ári ríkisstjórnarinnar að hún getur ekki valdið því verkefni að halda hér aga, festu og ráðdeild í opinberum fjármálum. En við munum ræða það í næsta máli líka.

Ég hef farið hér, virðulegur forseti, í mjög stuttu máli yfir helstu atriði fjáraukans og ég hvet alla þá sem hafa áhuga til að kynna sér nefndarálit minni hlutans. En það er mjög miður að við höfum verið að taka þessa umræðu í skjóli nætur.