157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

áhafnir skipa.

86. mál
[13:39]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að koma hér örstutt undir þessu máli. Þetta mál er til komið út af því að nú erum við að endurnýja björgunarskipaflota landsmanna. Þannig er mál með vexti að gömlu björgunarskipin okkar hafa verið með 750 kW vélum á meðan nýju björgunarskipin eru með tveimur 550 kW vélum, svo eitt dæmi sé tekið. Þetta hefur kallað á það og Landsbjörg hefur kallað eftir því, líka varðandi skipstjórn, því það er í mörgum af kannski smærri samfélögum þar sem þessi björgunarskip eru staðsett, að þá er kannski ekki akkúrat á staðnum mannskapur til þess að uppfylla réttindi sem þarf á svona skip eins og staðan er í dag. Landsbjörg er að leggja til að það verði samþykkt nám sem og námskeið sem Landsbjörg er með. Það er sambærilegt því sem er fyrir sambærileg skip í nágrannalöndum okkar, björgunarskip.

Nefndin fékk marga umsagnaraðila til að fara yfir þetta mál af því að nefndin vildi fá það alveg á hreint, og það er alveg á hreinu núna, og við vildum hafa það alveg skýrt, öll nefndin, og vorum mjög samstiga í þessu máli, að við værum ekki að gefa eftir neinar kröfur sem eru af hendi þeirra sem eru að stýra þessum skipum, hvort sem það er vélavarsla eða í brú, og höfðum horft til þess náms sem er boðið upp á í Tækniskólanum sem er náttúrlega lengra og kostnaðarsamara. En eftir að hafa rætt við Tækniskólann og Landhelgisgæsluna, talað við Landsbjörg og fleiri er nefndin þess fullviss að með þessari lendingu, eins og kemur fram í þessu frumvarpi, sé öllum þessum kröfum mætt varðandi þær kröfur sem við viljum gera til þess fólks sem er á björgunarskipum um allt land. En uppsetningin á þessu námi og í rauninni viðurkenningin sem þetta nám veitir til að stýra þessum björgunarskipum er í rauninni ekki síst til að koma á móts við þau samfélög þar sem er ákveðinn skortur eða er ekki eins mikið mannaval af fólki með tilskilin réttindi á þessi skip.

Þetta er því bara hið besta mál og var mjög vel unnið í nefndinni. Það var gott að fá þessar gestakomur og við vorum öll sammála um að við vildum vera með það alveg á hreinu áður en við samþykktum þessi lög og nefndin hleypti málinu hér inn í þingsal að það væri verið að uppfylla öll þau skilyrði sem við viljum gera til þeirra sem eru að stýra þessum skipum, oft í mjög erfiðum og krefjandi aðstæðum. Ég held að með þessu höfum við náð að koma á móts við það.