157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[14:12]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir framsögu sína og ágæta umfjöllun um álit meiri hlutans. Ég vil líka þakka þingmanninum og öðrum nefndarmönnum í velferðarnefnd fyrir samstarfið í þessu máli. Sjálfur hefði ég þó viljað haga verklagi með öðrum hætti. Þar skiptir mestu sá æðibunugangur sem var á meðferð málsins að óþörfu. Hér er enn eitt dæmi þess að mun heppilegra hefði verið að frumvarpið hefði verið lagt fyrr fram á þinginu þannig að okkur í nefndinni hefði gefist betra tóm til að gaumgæfa málið. Það er einlæg upplifun mín af nefndarmönnum í velferðarnefnd að áhugi sé á því að gera það. Það tekst ekki alltaf þegar tíminn er skammur.

Ég hef fyrirspurn til hv. þingmanns. Aðallega velti ég því fyrir mér að úrræði sem þetta er í eðli sínu eftirspurnardrifið en ekki framboðsdrifið, eins og Seðlabanki Íslands hefur bent á. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að þetta eftirspurnardrifna úrræði sem slíkt verði þensluhvetjandi og viðhaldi verðbólgu og háu vaxtastigi í landinu. Þannig myndi Seðlabankinn standa einn í þeirri baráttu að ná niður vöxtum í landinu og ríkisstjórnin myndi ekki vinna með bankanum í því. Núverandi ríkisstjórn hefði þá tekið upp verklag sem hún gagnrýndi svo oft í tíð fyrri ríkisstjórnar.