157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

varamaður tekur þingsæti.

[17:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Jónína Björk Óskarsdóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Alma D. Möller verði fjarverandi á næstunni. Að lokum hefur borist bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Ingvar Þóroddsson og Eiríkur Björn Björgvinsson geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi, Grétar Mar Jónsson, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Árni Rúnar Þorvaldsson, 3. varamaður á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, Gabríel Ingimarsson, en 1. og 2. varamaður á lista hafa boðað forföll, og 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll. Grétar Mar Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Valdimar Breiðfjörð Birgisson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.