húsnæðismál.
Frú forseti. Ég tek undir markmiðið, að það er brýnt að bæta stöðu fyrstu kaupenda. Við erum sammála því og styðjum almennt hlutdeildarlánakerfið þótt auðvitað sé það ekki ákjósanlegt að ríkið þurfi að vera í stórum stíl að taka þátt með þessum hætti á húsnæðismarkaði. Hér er verið að fara meira í framboðshliðina sem er bara, heldur maður við fyrstu sýn, jákvætt og við þurfum að sjá hvernig það þróast. Aukið fjármagn og annað eins — við höfum bent á að það eru einmitt, eins og hefur komið fram í þessari umræðu, ákveðnum spurningum ósvarað í tengslum við hvort sem eru athugasemdir Seðlabankans eða auðvitað landsbyggðarsjónarmiðin.
Ég sit hjá í þessu máli en það er síst vegna þess að maður sé mótfallinn kerfinu í sjálfu sér. Það er ágætt, það þarf að halda áfram að þróa það. Það eru sjónarmið í þessu sem í raun og veru helgast af því að þessi meðferð var eins og hún var, býsna fljót, eins og sjálfir nefndarmenn auðvitað viðurkenna, að þetta er býsna fljótt gert. Það gafst kannski ekki færi á að kynna sér þetta til hlítar þannig að maður geti lýst stuðningi við það. En það er þá ekki vegna sjálfs kerfisins heldur vegna þeirra aðstæðna.