húsnæðismál.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt mál. Þetta er eitt af mörgum mikilvægum skrefum sem við erum að stíga til að skapa heilbrigðari húsnæðismarkað á Íslandi. Og hvað erum við að gera hérna? Við erum að styðja við þá eiginleika hlutdeildarlánakerfisins sem eru framboðshvetjandi. Við erum að skapa aukinn fyrirsjáanleika og samfellu í kerfinu. Það var þannig þegar hlutdeildarlánunum var komið á fót á sínum tíma að það kom harkaleg gagnrýni frá Seðlabankanum. Það komu viðvörunarorð frá Seðlabankanum. Hvað gerði fólk þá? Lyppaðist það niður og hætti við að afgreiða málið? Nei, nei, nei, það var brugðist við þeim athugasemdum og það er nákvæmlega það sama sem meiri hluti nefndarinnar hefur gert núna.
Ég vil beina orðum mínum sérstaklega til hv. þingmanna Framsóknarflokksins sem komu þessu kerfi á á sínum tíma. Við erum að stórbæta kerfið með þessu. Við erum að skapa aukinn fyrirsjáanleika, aukna samfellu. Ég hvet þingmenn flokksins eindregið til að styðja þessi skref sem við erum að stíga til að gera kerfið miklu skilvirkara og betra þannig að það gagnist (Forseti hringir.) fleira fólki, fleiri fjölskyldum og sérstaklega þeim fjölskyldum sem ekki eiga kost á því að fá fyrir fram greiddan arf.
Ég styð þetta mál. Þetta er mikilvægt mál.