157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:14]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hafa borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 525, um fjármuni til loftslagsmála, og á þskj. 380, um kostnað við starfslokasamninga, báðar frá Karli Gauta Hjaltasyni. Einnig hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 507, um starfsmannamál háskóla, frá Diljá Mist Einarsdóttur. Þá hafa borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 527, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni, á þskj. 470, um dvalarleyfi útlendinga, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og á þskj. 471, um ótímabundið dvalarleyfi, frá Bryndísi Haraldsdóttur.

Að lokum hafa einnig borist bréf frá utanríkisráðherra, innviðaráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum frá Karli Gauta Hjaltasyni á þskj. 523, 528, 529 og 531, um fjármuni til loftslagsmála.

Listi yfir þingskjöl sem útbýtt er í upphafi þingfundar liggur frammi og eru skjölin aðgengileg á vef Alþingis.