157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

staða efnahagsmála.

[15:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Nú er það þannig að óvissa um þróun verðlags er alltaf til staðar og hv. þingmaður býr yfir meiri upplýsingum en ég ef hann getur fullyrt að þær breytingar sem Landsbankinn spáir séu einungis vegna breytinga á vörugjöldum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fjármálaráðuneytið býr yfir er þetta blanda af því og verðhækkun á bílum sem hefur þá með önnur skilyrði að gera en breytingar á opinberum gjöldum. En það er hárrétt sem hv. þingmaður segir að það er mjög mikilvægt að við grípum til aðgerða og þær aðgerðir liggja fyrir. Það er markmið þessarar ríkisstjórnar að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári. Þannig er ríkisfjármálunum best beitt til þess að skapa almennt aðhald og tryggja að væntingar um stöðugleika, bæði í verðlagi og öðru, haldist. Ég tek á engan hátt undir, og frábið mér í raun, allt tal um kreppuverðbólgu. Ég held að þetta sé ekki heppilegur vettvangur til að fara í smáatriðum yfir hvaða fyrirbæri það er og hvers vegna hún er ekki það ástand sem ríkir á Íslandi í dag. En það er rétt sem hv. þingmaður segir: Þetta er forgangsmál og það gerum við, við beitum ríkisfjármálunum með því að sýna aðhald til lengri tíma.