157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

staða efnahagsmála.

[15:20]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra heldur áfram að reyna að tala vandamálin í burtu og ítrekar að markmiðið sé að það fari að ganga betur en gerir hins vegar ekkert til að bregðast við því ástandi sem komið er upp. Það er orðið ljóst að vörugjöldin ein og sér munu hafa gríðarleg áhrif og svo bætist allt hitt við. Þessi ríkisstjórn er búin að koma á eins konar efnahagslegri vítisvél. Hún virkar þannig að stjórnvöld auka útgjöldin ítrekað en hækka um leið skatta. Fyrir vikið eykst verðbólga og vextir hækka. Fyrir vikið, aftur, þá minnka umsvifin og þar af leiðandi tekjur ríkisins sem afleiðing af því. Hvað gerir ríkið þá? Það byrjar upp á nýtt. Það hækkar skattana og eykur útgjöldin til að takast á við m.a. aukið atvinnuleysi. Þennan vítahring þarf að rjúfa, frú forseti, og nú spyr ég hæstv. ráðherra: Hvernig ætlar hann að gera það? Það að hann sætti sig við ástandið væri strax áfangi og hætti að segja okkur að hann óski þess (Forseti hringir.) að eitt og annað lagist. Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bregðast við því ástandi sem við horfum nú fram á í efnahagsmálum?