157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

farsæld barna og ungmenna.

[15:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svör. Mig langaði samt aðeins að benda á það að núverandi eða nýsettur ráðherra hefur hér verið með sleggjudóma varðandi ýmsar kennsluaðferðir og m.a. byrjendalæsi. Í tengslum við innleiðingu á Farsæld barna var sett upp mælaborð þar sem sýnd er tölfræði varðandi árangur, m.a. í læsi. Mig langar bara til að upplýsa þjóðina og þingmenn hér um það að ef við tökum Akureyri sem dæmi, sem er minn heimabær, þá sjáum við að allir skólarnir eru með byrjendalæsi og meðaltal, í rauninni fyrstu sex árgangana, er yfir landsmeðaltali varðandi árangur í læsi á Akureyri. Þar eru allir skólarnir með byrjendalæsi. Það er mikilvægt að við horfum á staðreyndir og horfum á tölur. Núna sjáum við það líka að biðlistarnir eru í sögulegu hámarki og jú, það er hópur í gangi, en það er mikilvægt að við stofnum hér hóp með aðilum sem hafa raunverulega ábyrgð og hafa vald líka til að geta tekið ákvarðanir til þess að við getum sett niður raunhæfar aðgerðir sem við getum ráðist í strax (Forseti hringir.) og líka aðgerðir sem eru þá til lengri tíma. Við vitum að þegar við náum saman um hlutina þá náum við árangri. Hæstv. ráðherra veit það sjálf því að hér hefur verið stofnaður hópur varðandi varnar- og öryggismál og ég kalla bara enn og aftur (Forseti hringir.) eftir skýru svari: Er Viðreisn tilbúin til þess að leggja í þessa vegferð með okkur, stofna þennan hóp og koma á einhverjum aðgerðum hér í íslensku samfélagi, börnunum okkar til heilla?