157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

farsæld barna og ungmenna.

[15:29]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Svo að ég svari síðustu spurningunni skýrt: Viðreisn er löngu farin í þá vegferð. Við erum löngu farin af stað að taka utan um börnin okkar og ungmennin okkar í því að styðja við menntakerfið. Ég tel mjög mikilvægt að við náum saman um þessa þætti sem við þurfum að ná betur utan um innan kerfisins. Ég vil líka draga fram að við erum með svo marga skóla. Við sem erum í kosningabaráttu sjáum það góða við íslenska samfélagið, við erum svo nálægt, við erum að heimsækja skóla reglulega, ekki bara fyrir kosningar. Þá sjáum við það sem mér finnst vera svo dýrmætt: Þessa fjölbreytni sem er í íslensku skólakerfi. Byrjendalæsi er eitt, já, að kveikja neistann er annað en eitt útilokar ekki annað. Við þurfum að finna þær leiðir sem henta hverju barni hverju sinni, í hvaða umhverfi sem er. Ég sé því ótrúlega mikil tækifæri fyrir okkur að sameinast um það að styrkja enn frekar menntakerfið okkar. Við erum með barna- og menntamálaráðherra sem hefur mikinn metnað en ekki bara metnað heldur líka ástríðu til að gera betur og hún undirstrikaði m.a. í ágætu Kastljósi í gær að vinna þessi verkefni í sátt og samlyndi (Forseti hringir.) og samstarfi við nærsamfélagið. Við eigum að grípa þá hönd. Það getur vel verið að við séum ekki sammála um allt en reynum að sameinast um það sem ýtir okkur áfram og tekur betur utan um (Forseti hringir.) menntakerfið okkar og börnin.