157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

aðgerðir í efnahagsmálum.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurninguna. Ég vil byrja á að benda hv. þingmanni á að gert var ráð fyrir 100 milljarða aðhaldi á tímabili fjármálaáætlunar. Því var skipt upp á ár og það er gert ráð fyrir aðhaldi upp á eina 15 milljarða á þessu ári. Hið góða er að strax á ári 0, þar sem ekki var gert ráð fyrir neinu sérstöku aðhaldi, náðu þær aðgerðir að skila ríflega 10 milljörðum. Ríkisstjórnin hefur þannig sýnt að sú aðferð sem hún hefur valið að beita, að fremur en að vona það besta og setja inn óútfærðar afkomubætandi aðgerðir í áætlanirnar sínar að segja nákvæmlega hvernig á að ná fram aðhaldi, að þá erum við að ná árangri. Nú er það auðvitað þannig að við horfum mjög náið á þróun hagkerfisins og það er gríðarlega mikilvægt að við stuðlum að verðmætasköpun og hagvexti. Þær aðgerðir sem hafa verið boðaðar í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar, og ég geri ráð fyrir að verði kynntar í næsta mánuði, snúa að því.

Varðandi síðan umræðu um áhrif vörugjalda á verðlag þá hef ég reynt, veikum mætti, í þessum ræðustól að benda á að breytingar á opinberum gjöldum eru ekki verðbólguhvetjandi heldur verðbólguletjandi. Ég vil gjarnan fá samtal um það við þingmenn hvaðan misskilningurinn um hið gagnstæða er kominn. Getur verið að þeir rugli saman verðbólgu sem fyrirbæri og mælingu hennar í vísitölu neysluverðs?