157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

aðgerðir í efnahagsmálum.

[15:35]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talar hér um aðhald. Í síðustu fjárlögum var báknið þanið út um 143 milljarða. Það er ekki aðhald í fjárlögum þegar þú eykur þau um 143 milljarða. Það er alveg ljóst að hin svokallaða stöðugleikaregla, sem er skattaregla, er fallin á fyrstu dögum nýs árs. Nú eru, eins og ég nefndi áðan, greiningaraðilar farnir að segja að fjárlagahallinn verði líklega nær 60 milljörðum í staðinn fyrir 28 milljarða. Þess vegna ætla ég að spyrja fjármálaráðherra aftur: Hvernig ætlar fjármálaráðherrann að fjármagna hallann sem virðist stefna í? Hvernig ætlar hann að fjármagna hann? Ætlar hann að hækka skuldirnar enn frekar? Eða ætlar hann að hækka skatta og gjöld enn frekar til að bregðast við hallanum, eins og hæstv. ráðherra gerði þegar átti að auka útgjöldin um 143 milljarða? Þá voru skuldirnar auknar og skatturinn og reikningurinn sendur á heimilin og fyrirtækin í landinu. Mig langar líka að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Stendur enn til að setja innviðagjöld á ferðaþjónustuna?