aðgerðir í efnahagsmálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurninguna. Nú verð ég að viðurkenna að sú fullyrðing hv. þingmanns að ríkisútgjöld hafi aukist um 143 milljarða er í besta falli dálítið sérstök. Í fyrsta lagi voru gerðar breytingar, sem var algjör samstaða í þinginu um að gera, með uppgjöri á ÍL-sjóði sem þýddi að vaxtagjöld vegna ÍL-sjóðsskuldanna, sem þó höfðu alltaf fallið á ríkissjóð, eru nú færð undir A1-hluta ríkissjóðs upp á 28 milljarða og 70 milljarðar eru verðlagsbreytingar.
Gagnrýni hv. þingmanns á stöðugleikaregluna er á allan hátt svolítið sérstök í ljósi þess að það er nákvæmlega fyrir hana sem við sjáum fram á að geta náð jafnvægi í ríkisútgjöldum. Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði hér í svari mínu til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar: Núna skiptir máli að standa í lappirnar, (Forseti hringir.) sýna aðhald, standa við það sem við höfum sagt, hallalaus fjárlög á næsta ári, (Forseti hringir.) hallalaus fjárlög sem fyrri ríkisstjórn sá alls ekki fyrir sér að væru neitt í kortunum en eru núna á næsta ári.