157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

afnám jafnlaunavottunar.

[15:38]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nú þegar annað starfsár ríkisstjórnarinnar er hafið eigum við loks von á því að hæstv. dómsmálaráðherra mæli fyrir frumvarpi sínu sem á að afnema jafnlaunavottun í núverandi mynd. Jafnlaunavottun var fyrsta þingmál Viðreisnar í ríkisstjórn á sínum tíma og hæstv. ráðherra á því sérstakt hrós skilið fyrir framgöngu sína, að beita skynsemi að fenginni reynslu. Mér er bæði ljúft og skylt að hrósa hæstv. ráðherra, enda er jafnlaunavottun sérstakt áhugamál mitt og ég hef ítrekað lagt fram frumvarp um afnám hennar og fleiri þingmál sem tengjast þessu bákni. Hæstv. ráðherra hefur því nú fengið að heyra neikvæðnisraddir, sem ég þekki orðið vel, sem saka hana m.a. um að vera ekki jafnréttissinni. Þeir sem tala þannig loka augunum fyrir því hvernig jafnlaunavottun hefur verið notuð til að halda launum niðri, m.a. kvenna eins og við sáum hjá kvenlæknum á Landspítalanum — láglaunavottunin.

Nú er umfangsminni jafnlaunavottun sem sagt loks á dagskrá og ég get ímyndað mér að hæstv. ráðherra hafi þurft að bíta í tunguna á sér við afgreiðslu einhverra mála hér á meðan góð mál hafa beðið. Á meðan er íslenskt atvinnulíf áfram fast í viðjum jafnlaunavottunar og gríðarlegs kostnaðar af henni. Hæstv. ráðherra hefur enda bent á hið augljósa, að fyrirtækjum beri að fara eftir gildandi lögum þangað til við breytum þeim hér á Alþingi. Ég fæ linnulausar fyrirspurnir frá óþreyjufullum atvinnurekendum, sem hafa ekki undan því að svara ýtnum úttektaraðilum og Jafnréttisstofu, og ég spyr því hæstv. ráðherra hvaða skilaboð hún hafi til þeirra.