afnám jafnlaunavottunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir fyrirspurnina og ætla bara að staðfesta það að hún er áhugamaður um jafnlaunavottun, nógu margar ræður hef ég hlustað á þar sem hún tekur til máls. Jú, það er rétt að jafnlaunavottun varð til í ríkisstjórnarsamstarfi sem Viðreisn sat í undir forystu forsætisráðherrans Bjarna Benediktssonar. Það er líka rétt að ég er hér að leggja fram frumvarp um að jafnlaunavottun verði aflögð í núverandi mynd. Fyrirtæki og stofnanir eiga þess vegna ekki lengur að þurfa að leggja í kostnað við það að fá utanaðkomandi vottunaraðila til að taka út launasetningu fyrirtækja einu sinni á ári. Við höfum hlustað eftir þessari gagnrýni sem þingmaðurinn lýsir. Við vitum að þetta úrræði hefur reynst býsna kostnaðarsamt. Þá er ábyrgt að leggja við hlustir en ekki bara það heldur að bregðast við. Þetta frumvarp þjónar þeim tilgangi. Það breytir ekki því að það hefur verið lagaskylda á fyrirtækjum og atvinnulífinu frá árinu 1976 um það að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Stjórnmálamenn sem búa í jafnréttisparadísinni Íslandi vilja halda þessum markmiðum líka á lofti. Það er vegna aðgerða í jafnréttismálum sem við höfum náð þeim árangri í jafnréttismálum sem raun ber vitni.
En hún spyr hver skilaboðin séu til atvinnulífsins. Mér finnst þau vera skýr. Jafnlaunavottun í núverandi mynd verður aflögð. Með því erum við að færa atvinnulífinu og hinu opinbera mikinn sparnað því það hefur komið fram, m.a. í könnun frá Samtökum atvinnulífsins, að beinn kostnaður atvinnulífsins vegna jafnlaunavottunar hafi hlaupið á milljörðum. Þetta er okkar framlag til þess að draga úr kostnaði fyrirtækja, eitt fjölmargra framlaga í þeim efnum. Lögin munu, verði þau samþykkt hér á Alþingi, taka gildi 1. september 2026.