157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

afnám jafnlaunavottunar.

[15:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Mér finnst sem ráðherra jafnréttismála að hér séum við að stíga gott skref því að við erum í jafnvægislistinni á milli þess að leggja við hlustir, mæta gagnrýni atvinnulífsins, létta á kostnaði og létta á stjórnsýslunni sem hefur verið of þung við þetta mál. Við ætlum hins vegar ekki, við ætlum ekki að gefa afslátt af markmiðum okkar um það að launasetning í landinu skuli vera byggð á málefnalegum sjónarmiðum, að fólki verði ekki mismunað á grundvelli kynferðis eða annarra ómálefnalegra sjónarmiða. Mér finnst eðlilegt að fyrirtæki og atvinnulífið skili upplýsingum á þriggja ára fresti, það er hóflegt, um það á hvaða sjónarmiðum launasetning byggist og við höfum ákveðna innsýn í það hver þróunin er. Við höfum hækkað mörkin. Núverandi lög giltu um fyrirtæki þar sem starfa 25 manns eða fleiri og við förum upp í 50 manns. Með því eru mjög mörg fyrirtæki undanskilin. En við verðum að vera skýr um það að við gefum ekki afslátt af jafnréttissjónarmiðunum að baki svona aðgerðum.