rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu, á þskj. 421, mál nr. 300.
Með frumvarpinu eru lögð til heildarlög um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Hugtakið „rýni“ vísar í þessu frumvarpi til greiningar og mats á því hvort fjárfestingar eða viðskiptaráðstafanir, sem tryggja erlendum aðilum eignaraðild, veruleg áhrif eða yfirráð yfir fyrirtækjum hér á landi, ógni þjóðaröryggi eða allsherjarreglu.
Tillögur frumvarpsins eru í samhengi við alþjóðlega þróun á þessu löggjafarsviði, en flest ríki á Evrópska efnahagssvæðinu og aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, hafa sett löggjöf sambærilega þeirri sem lögð er til með frumvarpinu, þó í mismunandi útfærslum.
Frumvarpið er í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember 2024 og snýr í grunninn að jafnvægi á milli þjóðaröryggis og mikilvægis erlendra fjárfestinga. Meginstef lagareglna um fjárfestingarýni er að samþætta sjónarmið um annars vegar jákvæð áhrif erlendra nýfjárfestinga og hins vegar nauðsyn þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi, ógni ekki þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Fjárfestingarýni er þannig sem slíkri ekki endilega ætlað að takmarka erlendar fjárfestingar heldur er markmiðið að ganga úr skugga um að einstakar erlendar fjárfestingar á afmörkuðum sviðum leiði ekki af sér öryggisógn.
Frumvarp þetta er í samræmi við drög að atvinnustefnu fyrir Ísland sem kynnt hafa verið og eru í vinnslu. Í drögum að atvinnustefnu er lögð sérstök áhersla á að umgjörð í kringum erlendar fjárfestingar verði einföld, gagnsæ og skilvirk. Með því getur Ísland verið eftirsóttur áfangastaður jákvæðra erlendra fjárfestinga sem flytja hingað fjármagn, þekkingu og tækni. Frumvarpið styður því við markmið atvinnustefnu um skýrari umgjörð um erlendar fjárfestingar.
Skilvirk og heildstæð löggjöf um fjárfestingarýni er til þess fallin að auka traust á íslensku fjárfestingarumhverfi til hagsbóta fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Með hliðsjón af erlendri réttarþróun á undanförnum árum er ljóst að reglur um fjárfestingarýni eru nú sjálfsagður þáttur í lagaumhverfi ríkja um erlendar fjárfestingar. Við gerð frumvarpsins var því horft til sambærilegrar nýlegrar löggjafar í nágrannaríkjum okkar, eins og nánar er fjallað um í almennum athugasemdum við frumvarpið.
Á þeim óvissutímum sem við lifum er litið svo á að traust regluverk utan um rýni á erlendri fjárfestingu sé mikilvægur hlekkur í þjóðaröryggi og baráttu við óæskileg áhrif erlendra aðila hér á landi sem geta ógnað öryggi og allsherjarreglu. Slík löggjöf er jafnframt talin styrkja orðspor Íslands gagnvart bandalagsríkjum sem ríki sem tekur þjóðaröryggi alvarlega og eykur traust á Íslandi sem samstarfsríki á þessum vettvangi. Eru nágrannaríki okkar farin að horfa til þessara hluta í vaxandi mæli í samskiptum sín á milli. Um mikilvægi slíkrar löggjafar fyrir Ísland er m.a. fjallað í úttekt OECD, sem birt var í júní 2025, um stöðu íslensks efnahagslífs.
Að sama skapi verður að gæta þess að með rýnilöggjöf séu ekki settar óþarfahindranir eða flækjustig sem dragi úr erlendri fjárfestingu og samkeppnishæfni Íslands. Einnig þarf að gæta að stjórnarskrárvörðum réttindum á sviði atvinnufrelsis og eignaréttar þegar kemur að mögulegum inngripum stjórnvalda í frjáls viðskipti. Erlendar nýfjárfestingar eru, nú sem áður, mikilvægar fyrir fjölbreytni í íslensku efnahagslífi og verðmætasköpun í landinu. Á þetta jafnvægi og samspil hefur verið lögð sérstök áhersla við gerð frumvarpsins, og í mörgum umsögnum við frumvarpið var lögð áhersla á þessa þætti.
Umfangsmikið samtal og samráð hefur átt sér stað við atvinnulífið og aðra haghafa við gerð frumvarpsins og er í greinargerð með frumvarpinu að finna nánari útlistun þar á.
Frú forseti. Forsögu máls þessa má í grunninn rekja til þess að árið 2021 skipaði þáverandi forsætisráðherra starfshóp með fulltrúum sex ráðuneyta til að vinna að frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Ástæða þess að farið var í þessa vinnu var annars vegar sú að víða í nágrannaríkjum Íslands hafði nýverið verið sett slík löggjöf og hins vegar að gildandi lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991, sem fela í sér ákveðnar takmarkanir á erlendri fjárfestingu og fjárfestingarýni, eru um margt veikburða og skortir fyrirsjáanleika, skýrar málsferðferðarreglur og valdheimildir.
Í kjölfar vinnu þessa starfshóps birti forsætisráðuneytið drög að frumvarpi í samráðsgátt haustið 2022. Í umsögnum sem bárust um þau frumvarpsdrög voru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða rýni, skilgreiningar á mikilvægum sviðum, málsmeðferð og fleira. Í kjölfar þessa var frumvarpið endurskoðað og lagði þáverandi forsætisráðherra frumvarpið fram á Alþingi í febrúar 2024, en málið náði ekki fram að ganga.
Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, er fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri á forræði atvinnuvegaráðherra. Af þeim sökum hefur verið unnið að þessu máli innan atvinnuvegaráðuneytis frá því í mars á síðasta ári. Við þá vinnu hafa eldri drög að frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu verið uppfærð og endurbætt.
Það frumvarp sem ég mæli hér fyrir tekur mið af áherslum úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem og þeirri þróun sem orðið hefur í alþjóðamálum síðastliðin ár. Jafnframt hefur frumvarpið verið aðlagað að þeim umsögnum og ábendingum sem bárust við fyrra frumvarp, auk nýrra umsagna sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda og í samtölum við haghafa.
Frumvarp þetta var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í október síðastliðnum. Alls bárust átta umsagnir, frá Landsvirkjun, Landsneti, HS Orku hf., Orkuveitu Reykjavíkur, Bændasamtökum Íslands, Samorku, SFF og sameiginleg umsögn frá SA, Viðskiptaráði og aðildarsamtökum SA. Umsagnaraðilar lýstu almennt þeirri skoðun að nauðsynlegt væri að setja löggjöf um fjárfestingarýni sem stæðist alþjóðlegan samanburð, líkt og hér er lagt til. Í umsögnum er einnig dregið fram mikilvægi þess að ákvæði frumvarpsins gangi ekki lengra en nauðsyn krefur til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að. Nokkrar ábendingar var að finna í umsögnum sem tekið var mið af við lokafrágang frumvarpsins. Allt voru það breytingar í þá veru að skerpa á meginmarkmiði frumvarpsins, að teknu tilliti til meðalhófs, og til að fyrirbyggja eftir fremsta megni of íþyngjandi framkvæmd.
Virðulegi forseti. Hér er um stórt og efnismikið frumvarp að ræða. Sem áður segir tekur það mið af sambærilegri nýlegri löggjöf í nágrannaríkjum okkar og var þar m.a. horft til gildandi löggjafar í Danmörku. Frumvarpið setur sem fyrr segir í grunninn ákveðinn ramma utan um rýni á erlendri fjárfestingu, sem síðan er gert ráð fyrir að fylla nánar inn í með útgáfu reglugerða.
Í stuttu máli eru helstu efnisatriði frumvarpsins þau að í 3. gr. þess er að finna skilgreiningu á viðkvæmum sviðum þar sem erlend fjárfesting er háð skyldurýni, þ.e. um er að ræða tilkynningarskyldu. Er þar m.a. átt við mikilvæga innviði eins og orku, hitaveitu, vatns- og fráveitu, samgöngur, flutninga, fjarskipti, stafræn grunnvirki, fjármálakerfi, almannavarnir, löggæslu og heilbrigðiskerfi. Þetta er listi sem mér þykir ekki ólíklegt að muni verða til umræðu í vinnu þingnefndar um málið og ýmislegt hefur verið nefnt sem mætti vera þarna til viðbótar. Annað hefur verið nefnt að mögulega væri óþarfi að hafa inni en þetta er auðvitað lykillistinn þegar kemur að markmiði frumvarpsins, að vernda eins og kostur er okkar mikilvægu innviði.
Í 4. og 5. gr. frumvarpsins er nánar fjallað um tilkynningarskyldu vegna skyldurýni. Utan tilkynningarskyldra tilvika er ráðherra síðan heimilt að efna til frumkvæðisrýni ef nauðsyn krefur vegna þjóðaröryggis eða allsherjarreglu. Er nánar um það fjallað í 6. gr. frumvarpsins.
Í III. kafla frumvarpsins er síðan að finna skýr og ítarleg ákvæði um málsmeðferð við rýni. Meðal annars kemur þar fram að unnt er að leita forálits ráðherra á því hvort fyrirhuguð ráðstöfun sé tilkynningarskyld samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Það er að mínu mati gríðarlega mikilvægt ákvæði til að hafa þar inni, svokallað leiðbeiningarákvæði.
Í 12. gr. frumvarpsins er að finna matsviðmið sem horfa ber til við mat á því hvort fjárfesting eða ráðstöfun sé talin ógna þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Meðal annars skiptir þar máli á hvaða sviði fjárfesting er og að ljóst liggi fyrir hvaða erlendi fjárfestir á í hlut. Svo ítarleg matsviðmið er ekki að finna í gildandi lögum og er talið mikilvægt að bæta úr því eins og hér er lagt til.
Þá mælir frumvarpið fyrir um úrræði til að afla upplýsinga um eignarhald og eignartengsl þeirra erlendu aðila sem standa að einstökum fjárfestingum, en samkvæmt gildandi lögum hefur slík upplýsingaöflun verið erfiðleikum háð.
Um framfylgd laganna er síðan fjallað í IV. kafla, en gert er ráð fyrir að fjárfestingarýnin verði framkvæmd innan atvinnuvegaráðuneytis, með aðkomu fleiri fagráðuneyta eftir því sem á við.
Sem áður segir er gert ráð fyrir að nánar verði fyllt inn í efnisatriði frumvarpsins með setningu reglugerða og áður en til gildistöku kemur verða gefnar út ítarlegar leiðbeiningar. Er vinna við þær reglugerðir og leiðbeiningar þegar hafin.
Forseti. Hér er að mínu mati um mikilvægt mál að ræða og mikil og góð vinna, þvert á ráðuneyti, sem liggur að baki því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir. Það er brýnt að öll umgjörð í kringum erlendar fjárfestingar sé eins skýr, skilvirk og fyrirsjáanleg og unnt er og að hún sé almennt í samræmi við þær áherslur sem við sjáum í nágrannalöndum okkar. Ég ítreka að annað lykilatriði í þessu máli er að gæta að jafnvæginu á milli þess að liðka fyrir jákvæðum erlendum fjárfestingum en á sama tíma að hafa til staðar trausta lögbundna ferla til að rýna erlenda fjárfestingu. Með öðrum orðum; að við setjum okkur skýran ramma þegar kemur að rýni á erlendum fjárfestingum. Slíkur rammi er ekki til í dag.
Þetta frumvarp talar að mörgu leyti beint inni í stöðu heimsmála og þá þróun sem við sjáum í kringum okkur. Út frá þjóðaröryggi má segja að frumvarpið sé einn liður í almennri hagsmunagæslu og til að tryggja stöðu Íslands á viðsjárverðum tímum.
Ég bind miklar vonir við að frumvarp þetta fái góða og upplýsandi en að sama skapi frekar snögga umræðu hér á Alþingi þannig að við náum að klára lögfestingu þessa góða máls hér á vorþingi.
Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar og afgreiðslu.