rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu á mjög mikilvægu máli sem er líka mjög mikilvægt að við vinnum vel hér í þinginu þar sem undir eru miklir hagsmunir þjóðarinnar. Það er því vissulega hægt að taka undir markmið og tilgang frumvarpsins, sérstaklega það meginstef að fjárfestingarýni er ætlað að samþætta sjónarmið um mikilvægi erlendrar fjárfestingar fyrir efnahagslífið, sem er mjög mikilvægt, og nauðsyn þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum séu í samræmi við þjóðaröryggi og allsherjarreglu, að sjálfsögðu. En það er ljóst, frú forseti, að lögfesting frumvarpsins mun hafa víðtæk áhrif. Það er hætta á að verði frumvarpið samþykkt óbreytt, eins og það kemur mér fyrir sjónir, muni það skapa óvissu og muni mögulega geta dregið úr samkeppnishæfni atvinnulífsins til þess að laða að erlenda fjárfesta og fjármagn til landsins. Þar vekja sérstaklega áhyggjur mínar veigamikil efnisatriði frumvarpsins sem eru enn óljós, íþyngjandi og mörg hver eru þau matskennd og svo virðist sem gengið sé mun lengra en í sambærilegri löggjöf helstu nágrannaríkja og samstarfsríkja innan OECD og innan ESB. Frumvarpið tekur mið af danskri löggjöf sem þykir sú umfangsmesta og strangasta sem sett hefur verið innan OECD. Írland setti t.d. fyrir tveimur árum löggjöf sem gengur ekki jafn langt.
Því langar mig í mínu fyrra andsvari að spyrja ráðherra að þremur spurningum. Í fyrsta lagi: Hefur, á þessum fimm árum síðan dönsku lögin voru sett, verið skoðuð reynslan af þeirri löggjöf? Í öðru lagi: Eru reglugerðarheimildir ráðherra jafn víðtækar í dönsku lögunum og á Íslandi? Í þriðja lagi: Af hverju er frítekjumark nýstofnaðra fyrirtækja eða nýsköpunarfyrirtækja helmingi lægra en það frítekjumark sem er í dönsku lögunum? (Forseti hringir.) Það mætti færa mörg rök fyrir því að það ætti frekar að vera helmingi hærra í því viðkvæma umhverfi sem er hér á Íslandi.