157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:13]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, það eru reglugerðarheimildir í þessum lögum. Þær eru hins vegar fyllilega sambærilegar við það sem þekkist í dönsku lögunum og það er auðvitað ástæða fyrir því, það er á ákveðinn hátt flókið að setja það inn í lögin, afmarkað á einhverjum viðkvæmum sviðum, og dregur úr sveigjanleika sem þörf er á nákvæmlega að hafa í málaflokki sem þessum. En það er alveg hárrétt að þetta er mál af þeim toga — og þess vegna sagði ég það í framsöguræðu minni áðan að við værum farin að vinna að reglugerðunum til þess að koma þeim til umsagnar og hafa þær til, þannig að þetta er ekki unnið án samráðs. En það er bara mikilvægt að hafa þennan sveigjanleika. Þetta frumvarp var unnið að fyrirmynd löggjafar ekki bara í Danmörku heldur líka hjá þeim þjóðum sem hafa verið með löggjöf á þessu sviði. (Forseti hringir.) Ég tek auðvitað undir það með hv. þingmanni að það er mikilvægt að vinna þetta vel. Það á nú við um aðra löggjöf líka. (Forseti hringir.) En það er mikilvægt að vinna þetta hratt vegna þess að við erum ekki með nægilega góða löggjöf á þessu sviði núna. (Forseti hringir.) Ég held að okkur ói öllum við fréttum af því sem er að gerast á alþjóðavettvangi og skiljum mikilvægi þess að koma þessum málum í gott horf.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á tímamörkin.)