rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að þetta frumvarp sé hér fram komið. Ég hef reyndar kallað eftir því að þetta frumvarp komi fram í næstum því heilt ár. Ég held að ég hafi gert það við stefnuræðu forsætisráðherra í byrjun febrúar í fyrra og margoft endurtekið það, hvað líði því að koma fram með frumvarp um rýni á erlendum fjárfestingum. Það er ástæða fyrir því og hæstv. ráðherra kom inn á það í síðustu orðum sínum. Þess vegna finnst mér það svolítið ódýrt af ráðherranum að segja að þetta mál eigi að fara núna hraða ferð í gegnum þingið og klárast af því að það sé mikilvægt, þegar ríkisstjórnin er búin að liggja á því í heilt ár. Það lá fyrir frumvarp sem er vitnað í í þessu ítarlega plaggi, takk fyrir það, talsvert að lesa reyndar en ítarlegt er það.
Spurning mín hér í fyrri lotu er: Hvað kom í veg fyrir það að ríkisstjórnin hreinlega flýtti sér að leggja fram slíkt mál? Samkvæmt forsetaúrskurði var það fært frá forsætisráðherra til atvinnuvegaráðherra, ég ætla ekki að gera athugasemdir við það, gamla löggjöfin var hjá atvinnuvegaráðuneytinu. Hvað er það sem gerir það að verkum að málið kemur ekki fyrr en núna?
Og hitt, ef það eru svona víðtækar breytingar, ég sé að í 1. kafla greinargerðar eru taldir upp þó nokkrir hlutir sem hafa breyst, þá langar mig að heyra álit ráðherrans á því, ekki síst í ljósi andsvars við hv. þm. Hildi Sverrisdóttur sem hafði áhyggjur af því að þetta væri of líkt dönsku löggjöfinni og þar af leiðandi ítarlegt, á meðan ég kem úr hinni áttinni. Ég hef áhyggjur af því að hér sé búið að veikja of mikið af einhverju. Ég veit að sumt er alveg klárlega jákvætt. Ég sé t.d. að fasteignaréttindi hafa verið felld út og mig langar að spyrja um það. En fyrst kannski bara: Af hverju er þetta ekki komið fyrr?