157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:20]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Við erum sammála og það er gott, við erum sammála um mikilvægi frumvarpsins og ég ætla að leyfa mér að túlka orð hv. þingmanns þannig að hann muni ekki telja þörf á því að standa í vegi fyrir afgreiðslu málsins hér á þingi né vinnslu. En eitt af því sem einkenndi málið 2024 var að Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins voru ekki sérlega hrifin af því, töldu að þar mætti margt bæta. Það var farið í umfangsmikið samráð vegna þess að það er ekkert sérlega klókt að fara með svona mál í þessa vinnslu ef fyrirtæki sem reiða sig á erlenda fjárfestingu eru heilt yfir á móti því. Þetta þarf að vinnast saman. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þær hræringar og sviptingar í alþjóðamálum sem hafa orðið hafa sennilega breytt viðhorfi að einhverju leyti, rétt eins og hjá mörgum öðrum, en það tók þennan tíma. Þetta gerist bara. Frumvarpinu hefur verið breytt og það var unnið úr bæði þeim athugasemdum sem komu við framlagningu málsins 2024 og síðan þegar það var í samráði núna. Kannski ættum við að halda þessu samtali áfram og hv. þingmaður gæti á öðrum vettvangi svarað mér því: Af hverju fór málið ekki í gegn 2024?