157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:21]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að mæla fyrir þessu frumvarpi sem er mikilvægt. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum að rýna erlendar fjárfestingar, ekki síst þegar við erum að tala um lykilinnviði sem snúa að hitaveitu, orkuinnviðum og þessum grunnstoðum sem við treystum öll á. Það er mikilvægt að það sé gert á sama tíma og við þurfum auðvitað, eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir benti á hér áðan, líka að geta dregið til okkar erlenda fjárfestingu fyrir öflugt atvinnulíf. Þarna þarf að vera ákveðið jafnvægi.

Ég verð að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki er tekið á fjárfestingu í landi, þ.e. bújörðum, í þessu frumvarpi. Hér sýnist mér að það sé talað um framleiðslu á mikilvægum aðföngum, það er talað um nýtingu vatnsorku, jarðhita og vindorku, það er talað um nýtingu en það er ekki talað um eignarhaldið, eignarhaldið á þessum auðlindum þegar við sjáum að jarðir eru keyptar af erlendum aðilum. Þetta er risastór veikleiki í íslenskri löggjöf. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna er ekki verið að tala um rýni á alþjóðlegum fjárfestingum, erlendum fjárfestingum í landi? Við sjáum að það skiptir gríðarlega miklu máli því að með sölu á jörðum erum við að selja auðlindir. Það er það sem við þurfum að koma í veg fyrir og rýna vel, ekki síst með þessu frumvarpi.