157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:25]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil hvetja ráðherrann og ríkisstjórnina alla til að horfa á þetta í samhengi við þessa löggjöf því þetta er rýni á fjárfestingum í innviðum og það sem skiptir okkur mestu máli sem þjóð. Og svo ég ítreki það aftur: Það sem við erum að horfa á í samhengi við okkar löggjöf er að þegar við seljum jarðir þá erum við að selja auðlindir með. Við erum að selja jarðhitann með, við erum að selja vatnið með, við erum að selja jarðefni með. Ef það er ekki það sem er þjóðhagslega mikilvægt, auðlindirnar sjálfar, þá veit ég ekki yfir hvað slík rýni á að ná. Í mínum huga er þetta eitthvað sem ég hvet hæstv. ráðherra til að beita sér fyrir, á sama tíma og ég skil hvað hæstv. ráðherra á við um aðra lagabálka. Það þarf einfaldlega að skoða þá líka. Því spyr ég hæstv. ráðherra, í ljósi einmitt þess sem við sjáum í alþjóðamálum, við sjáum að auðlindir eru alls staðar, í samhengi við Grænland, í samhengi við Úkraínu, (Forseti hringir.) þetta er mál málanna í dag: Telur hæstv. ráðherra þörf á því að skoða það í samhengi við þetta mál og (Forseti hringir.) er hæstv. ráðherra til í að beita sér fyrir því að við gerum það í samhengi við aðra lagabálka líka?