157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:27]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið og árétta bara að það er mikilvægt að við eigum skýra og sterka löggjöf sem nær utan um mikilvægi þessa. Við vinnslu þessa frumvarps og samhliða þeirri vinnu sem er farin í gang og hefur svo sem verið í gangi í langan tíma, við endurskoðun á jarðalögum, hefur það verið niðurstaða þeirra sérfræðinga sem hafa komið að málinu, og það hefur verið farið vel yfir þetta t.d. með forystu Bændasamtakanna, að þetta eigi frekar heima undir endurskoðun á jarðalögum til að tryggja það. Spurningin er náttúrlega frekar: Hvað er það sem við viljum vernda og hvert er markmiðið? Við þurfum líka að huga að atvinnufrelsi og eignarrétti og bújarðir eru jú í eigu einstaklinga þannig að það er kannski of íþyngjandi að fella þær allar sem slíkar undir lög um rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis. En þetta er bara spurning um hvernig málið er sett fram. Ég er algjörlega sannfærð um að við öll sem erum hér í þessum sal og gætum hagsmuna þjóðarinnar séum sammála um mikilvægi þess að gæta að náttúruauðlindum (Forseti hringir.) og bújörðum sem við höfum. Það liggur bara fyrir að þess verður gætt. Fyrirkomulagið er spurningin. Þetta er bara í áframhaldandi vinnu en þetta er markmiðið og þangað stefnum við.