157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:54]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja mál mitt á því að fagna því að þetta frumvarp sé komið hér fram eins og ég gerði í andsvari við hæstv. ráðherra um leið og ég undrast svolítið að ríkisstjórnin hafi ekki lagt meiri áherslu á að koma með jafn mikilvægt mál fyrr inn, ekki síst í hinu alþjóðapólitíska umhverfi sem við höfum verið að lifa núna síðustu mánuði og misseri og jafnvel ár, kannski sérstaklega liðið ár og það sem af er þessu. Það er engu að síður komið hingað. Þess vegna þótti mér óþægilegt að heyra þann tón í ráðherranum að hér væri svo vel unnið mál að það ætti bara að drífa það í gegnum þingið og klára það á stuttum tíma, vegna þess að það er eðlilegt að þingið fái tíma til að fara yfir málið. Það er fullkomlega eðlilegt, það er lýðræðislegt. Það er líka svolítið sérkennilegt þegar ríkisstjórnin er búin að taka sér heilt ár í að skoða það að þessi skilaboð séu send.

Það sem ég vildi segja almennt um þetta mál er að við höfum horft á það á liðnum árum og ég verð að segja alveg eins og er að ég hef haft mikinn hug á því að slík löggjöf yrði sett og í ríkisstjórn sem sat hér á bilinu 2021–2024 var gerð gangskör í því. Og þar sem þetta mál varðar fjárfestingar í ólíkum geirum og getur þar af leiðandi heyrt undir ólík ráðuneyti og ólíka ráðherra var það niðurstaðan að forsætisráðherra færi með það mál í þeirri ríkisstjórn. Þess vegna fór ég hér aðeins í andsvar við hv. þm. Hildi Sverrisdóttur sem fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna þess að við vorum auðvitað í þeirri ríkisstjórn þrjú saman og að takast á um það hvað væri eðlilegt og hvað mætti ganga langt. Ég held að öllum megi vera það ljóst að það sem var kannski í upphafi í kringum 2021, að einhverjum þætti það óþarfi að vera að setja fram slík frumvörp eða það yrði að passa sig mjög mikið að styggja enga erlenda fjárfesta, að það sé öllum ljóst í dag að það er mikilvægt að svona löggjöf sé fyrir hendi. Þess vegna hef ég verið að kalla eftir því að hún kæmi hér fram hjá núverandi ríkisstjórn vegna þess að ég vissi að það var til heildstætt frumvarp sem hafði verið lagt fram sem vissulega var ekki allra í samfélaginu.

Ég held að hins vegar megi halda því fram með fullum rétti — og ég ætla að vitna til þess að hér kom til að mynda franskur fjárfestingarsjóður og keypti mikilvægan innvið, Mílu, og ég átti fundi sem ráðherra fjarskipta á þeim tíma m.a. með þessum aðilum og útskýrði fyrir þeim að þetta myndi fara í þá rýni sem við þá höfðum á grundvelli þeirrar löggjafar sem nú gildir en sagði jafnframt að hún væri gölluð. Þessir aðilar sögðust einfaldlega hafa búist við því fullkomlega og eðlilega að þetta mál færi í ítarlega rýni, þeirra hugsanlegu kaup sem síðar urðu. Við þekkjum það mjög vel úr því umhverfi sem við vinnum alþjóðlega og okkur þætti það óþægilegt ef við fengjum ekki rýni á slíka fjárfestingu.

Þess vegna er það að hafa frumvarp sem tekur á rýni á erlendri fjárfestingu ekki til þess að fæla frá erlenda fjárfestingu. Það er einfaldlega rangt þegar einhverjir slíkir aðilar koma og halda því fram. Það að það sé hins vegar farið í einhverja eðlilega rýni út frá hagsmunum Íslands sem segir: Af þessu tilefni er engin ástæða til að hafa áhyggjur af þessari fjárfestingu, þetta er fjárfesting sem við þurfum, hún er eðlileg og við þurfum ekki að fara lengra með málið — en það er mikilvægt að það sé til fyrirkomulag sem kalli á að það þurfi rýni.

Ég ætla bara að ítreka að það er afstaða mín og afstaða okkar í Framsókn að þetta mál sé mikilvægt og það sé mikilvægt að við séum með slíkt og ég held að það sé heppni frekar en hitt að það hafi ekki komið til einhverra áfalla hér á síðustu árum vegna þessa. Ég ætla að halda því fram að það sé vegna þess að við höfum verið með mikla árvekni gagnvart öllum slíkum hreyfingum. Við höfum hreinlega tekið þær til skoðunar. Þó svo að regluverkið og lagaverkið í kring hafi ekki verið nægjanlega gott þá höfum við engu að síður gert það á grundvelli eðlilegrar hagsmunagæslu fyrir Ísland.

Ég spurði hæstv. ráðherra í andsvari hverjar væru helstu breytingarnar að mati ráðherrans frá því frumvarpi sem þá var lagt fram fyrir einhverjum tveimur löggjafarþingum, 154., ef ég man rétt, sem gerði það að verkum að — og af hverju það hefði tekið heilt ár fyrir ríkisstjórnina að koma sér saman um þetta. Í 1. kafla, á bls. 14, er ágætisyfirlit yfir það. Ég var búinn að renna yfir það en mig langaði að fá umræðu við ráðherrann um það af hverju ákvæði er varða fasteignaréttindi eru felld út úr frumvarpinu. Ég veit að í andsvari við hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur kom fram að þetta tilheyrði öðrum lagabálkum eða eitthvað slíkt. Þá getur maður sagt: Já, stendur þá til að tryggja það í þeim lagabálkum sem væri hægt að koma fyrir hér við þessa rýni? Er það á þingmálaskrá eða á verksviði eða áætlun ráðherrans og ríkisstjórnarinnar að koma fram með slíkt á sama tíma og við klárum þetta mál eða á bara að skilja það eftir? Því þá er það galli. Þá hefði verið betra að hafa þetta inni í þessu máli. Þetta held ég að nefndin þurfi að skoða nokkuð ítarlega. Af hverju? Jú, það er náttúrlega orðið nokkuð augljóst að auðlindir sem eru til lands og sjávar og víðar eru orðnar eitthvert mesta bitbein alþjóðastjórnmála. Stóru löndin ásælast hreinlega auðlindir. Við höfum sagt: Við erum til þess að gera fá í mjög stóru landi og bara mjög ríkir einstaklingar, eða ég tala nú ekki um heilu löndin, gætu komið og keypt land innan þess ramma sem þó er búið að herða, sem var gert á síðustu sjö árum. Við í Framsókn hefðum viljað ganga lengra. Þess vegna sakna ég þess að hafa þetta ekki hér. Ég hef áhyggjur af því að land sem fer í slíka eigu komi aldrei aftur í eigu Íslendinga, sé þar af leiðandi tapað og á löngum tíma geti það varðað fullveldisrétt þjóðarinnar, að landið sé horfið úr eigu þeirra sem búa á Íslandi, þannig að ég hefði viljað að þetta yrði skoðað og er ekki alveg sáttur við að þetta hafi verið tekið út en ég vona að nefndin leggist yfir það.

Síðan eru þarna hlutir sem mér sýnist að séu jákvæðir. Það er fjallað um að til einföldunar sé gert ráð fyrir einni tegund af tilkynningu í stað lengri og styttri. Ég held að það gæti alveg vel verið ágætt. Það þarf auðvitað að skoða það. Svo er fjallað dálítið um að stytta tímann sem ráðherra hefur og í greinargerðinni er fjallað dálítið ítarlega um það. Þessi tími er þó umtalsvert styttri, held ég, en er t.d. í dönsku löggjöfinni, sýndist mér að hefði komið þar fram, og það verður að passa að ganga ekki of langt til þess að stjórnvöld hafi tíma til að gera hlutina nægilega vel. Aðalatriðið er að hlutirnir séu nægjanlega skýrir gagnvart þeim aðila sem sætir þessari rýni og það sé sanngjarnt, að menn viti nákvæmlega að það sé þessi tími en ekki einhver ótilgreindur tími.

Það eru hér einhverjar nýjar upplýsingar um — eða nýir viðkvæmir aðilar eða það sem skal fara undir þessa rýni sem er framleiðsla, þróun og notkun á hergögnum og -tækni sem verði skilgreint sem viðkvæmt svið, sbr. 3. gr. Ég held að það sé jákvætt og mikilvægt í þeim heimi sem við erum komin inn í.

Hér er t.d. annað atriði sem mér finnst nauðsynlegt að nefndin skoði, að stærðarmörk eignarhlutar eða atkvæðisréttar erlends aðila sem falli undir skyldurýni verði hækkuð í 25%, síðan 33, 50, 75 og 100 í stað þess að byrja í 10 eða 20 eða 33. Hér er ég ekkert að segja að 10% hafi verið rétt. Hér er bara verið að hækka þetta. Þá er bara spurning hvaða áhrif það hefur. Er verið að opna hér of mikið? Ég veit það ekki. Ég held að það sé mikilvægt sem hér er nefnt að við frumvarpið bætist ákvæði um heimild ráðherra til frumkvæðisrýni vegna útboða mikilvægra innviða og það er í samræmi við danska löggjöf. Ég held bara að við höfum upplifað það á síðustu mánuðum síðustu ríkisstjórnar að það var skortur að hafa ekki slíkt inni og hafi það ekki verið í frumvarpinu sem hér lá fyrir áður þá er það jákvætt að þetta sé komið hér inn. Ég held að það sé mikilvægt og við höfum verið að sjá þróun í heiminum, því miður, í þá áttina að það sé nauðsynlegt að geta sett inn skilyrði vegna útboða mikilvægra innviða, hvort sem er í fjarskiptum eða veitum eða rafmagni, vatni, samgöngum eða hvað það nú er.

Ég set spurningarmerki við þá reglugerðarheimild sem ráðherra fær til að undanþiggja ákveðin samstarfs- og bandalagsríki frá rýni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. að öll eigendakeðjan skuli vera frá slíku ríki. Hér er nefnt að gert er ráð fyrir að slík skilyrði gætu m.a. átt við EES-ríki. Er það eitthvað betra að það séu einhver EES-ríki sem eignist stóran hluta af Íslandi án þess að við séum með einhverja rýni á það? Er einhver munur á Noregi og Svíþjóð? Noregur er reyndar í EES, eigum við að segja Sviss, sem er í EFTA en ekki EES, eða Ástralíu eða Kanada, í staðinn fyrir Holland? Ég held að þarna kalli eitthvað á að það sé skoðað af nefndinni að það sé ekki verið að ganga þarna óþarflega langt.

Síðan skildi ég ekki eitt ákvæði í þessu. Það er orðað svona, með leyfi forseta, á bls. 14, það er síðasti punkturinn:

„Ráðherra sem fer með málefni þjóðaröryggisráðs, ráðherra utanríkis- og varnarmála og ráðherra sem fer með málefni almannavarna verði heimilt að óska eftir frumkvæðisrýni á fjárfestingu eða viðskiptasamningi telji þeir slíkt nauðsynlegt vegna þjóðaröryggis eða allsherjarreglu.“

Það sem vakti athygli mína er að þjóðaröryggisráði er auðvitað stýrt af forsætisráðherra og það er ekki minnst á það heldur talað um ráðherra sem fer með málefni þjóðaröryggisráðs og ráðherra sem fer með málefni almannavarna. Ég skil það vegna þess að það getur auðvitað komið til greina að það sé ekki dómsmálaráðherra heldur hugsanlega forsætisráðherra. En þetta vekur spurningar: Af hverju er ekki bara sagt: forsætisráðherra, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra eða eitthvað slíkt, úr því að verið er að tala um ráðherra utanríkis- og varnarmála en ekki forsætisráðherra og ekki dómsmálaráðherra? Þetta eru þær spurningar sem vöktu athygli mína.

Ég ætla svo sem ekki að vera að fjalla um, á allt of takmörkuðum tíma, bara mjög, að mér sýnist, vel unnið frumvarp með miklum texta, miklum greinargerðum. Það er talað hérna um að í megindráttum verði skipt í þessa sjö flokka, það sem eru mikilvægir innviðir og mikilvæg aðföng og nýting mikilvægara náttúruauðlinda, þar sem vakti athygli mína að fasteignir voru undanskildar og einnig að á bls. 27 er sagt, með leyfi forseta:

„Það er því talið nauðsynlegt með tilliti til þjóðaröryggis og allsherjarreglu að tilgreina sem viðkvæmt svið starfsemi sem lýtur að nýtingu á mikilvægum náttúruauðlindum í þjóðlendum, sbr. 3. tölul. 3. gr. frumvarpsins.“

Þá er sagt, og þetta ætla ég að fá að lesa, með leyfi forseta:

„Þótt framangreind sjónarmið eigi í sjálfu sér við um allflestar náttúruauðlindir á láði og legi var afráðið að takmarka gildissvið ákvæðisins við auðlindanýtingu í þjóðlendum.“

Þetta finnst mér áhugavert og nauðsynlegt fyrir nefndina að fjalla um. Af hverju var afráðið að takmarka gildissviðið við eingöngu náttúruauðlindir í þjóðlendum? Það gildir sem sagt ekki um auðlindanýtingu innan eignarlanda og gildir ekki um auðlindanýtingu á hafi úti eða hafsbotni.

Ég sé, frú forseti, að tími minn gengur það hratt að ég mun ekki ná að fara eins ítarlega yfir restina og ég ætlaði mér þannig að ég ætla bara að segja í lokin að heilt yfir er ég ánægður með að þetta frumvarp sé komið fram. Ég tel að nefndin þurfi að skoða í hverju munurinn liggur frá því frumvarpi sem var lagt fram áður, hvort það sé verið að fara einhverja einfaldari leið til að gera hlutina auðveldari, hvort í því felist einhverjar hættur. En ég ætla að ítreka að það er mikilvægt fyrir erlenda fjárfestingu og erlenda fjárfestingaraðila að slík lög séu til því þeir ætlast einfaldlega til þess að svo sé.