búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Aftur að þeirri skoðun hv. þingmanns að með þessum greinarmun á hvíta kjötinu og annarri kjötframleiðslu, eða bændum öllu heldur, sé ekki verið að gæta jafnræðis. Það er ekki jafnræði núna. Með þessum undanþáguheimildum fyrir sauðfé, nautgripi og hross er verið að búa til ákveðið jafnræði þegar litið er til markaðsins í heild. Þetta fer þannig eftir því hvernig á málið er litið, en þetta er sem sagt útgangspunkturinn.
Það er sagt í greinargerð að frumvarpinu sé ekki ætlað að hafa áhrif á — svo ég vísi í spurningu eða áréttingu hv. þingmanns um að þetta sé ekki afturvirkt. Almennt eru lög það ekki þannig að það liggur bara fyrir að þetta ákvæði um að taka samrunann út, að stoppa það að samruni afurðastöðva sé undanþeginn samkeppnislögum, er ekki afturvirkt frekar en önnur lagasetning. Til þess að hnykkja enn frekar á því (Forseti hringir.) er þess getið í greinargerð þannig að ég hygg nú að það sé eiginlega ómögulegt að skilja þetta öðruvísi, en það er þá nefndarálit til staðar ef frekari þörf er talin á því.