búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir framsögu á sínu máli og fylgja því ágætlega úr hlaði og verður fróðlegt að eiga umræður um það í framhaldinu. Mig langar í mínu fyrra andsvari að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir var áðan, um þær heimildir sem eru settar inn í þetta frumvarp og snúa að Samkeppniseftirlitinu. Við áttum hér orðastað fyrr í dag um þetta tiltekna atriði, ég og hæstv. ráðherra. Nú er það svo að við höfum alveg skýr dæmi þess að 11. gr. samkeppnislaga nái utan um það sem verið er að skrifa inn í þessi búvörulög, það sem snýr að Samkeppniseftirlitinu. Hæstiréttur hefur staðfest það í dómi 27. mars 2020, ef ég man þetta rétt, í dómi um Samkeppniseftirlitið gegn Mjólkursamsölunni, þannig að ég tel að heimildir eftirlitsins séu nokkuð skýrar hvað það varðar. Það sem truflar, held ég, þá sem eru með ákveðna gagnrýni á frumvarpið og það sem snýr að Samkeppniseftirlitinu — og ég heyrði alveg hvað hæstv. ráðherra sagði í sínu seinna andsvari við hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur varðandi afturvirkni — er spurningin: Þegar þú ert kominn með víðtækar heimildir og það er búið að skrifa þær inn í lögin, þurfum við þá ekki að gera það og skýra það enn frekar í nefndaráliti að það sé ekki hægt að fara þá leið þar sem samruni hefur átt sér stað að honum verði skipt upp? Það er, held ég, stóra málið í þessu. (Forseti hringir.) Mín spurning til ráðherra er hvort það geti ekki verið bara góð lending fyrir okkur í þessu ágæta máli að fara þá leið að meiri hlutinn eða nefndin taki málið þannig og komi því fyrir í nefndaráliti.