búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Þetta er akkúrat það sem hér er um að ræða, að það sé skýrt í lagatexta, þá væntanlega þegar málið kemur í 2. umræðu, um hvað er verið að ræða, hverjar heimildirnar eru o.s.frv. Síðan vil ég segja það, virðulegur forseti, að það er ánægjulegt eftir allt sem á undan er gengið hér með breytingar á búvörulögum undanfarin ár að við séum þá alla vega á þeim stað sem verið er að ræða um. Það er gríðarlega mikilvægt.
Ég lít á það sem hér er verið að fjalla um sem tæknilegt atriði sem ég held að við þurfum að skoða mjög vel í atvinnuveganefnd, þ.e. sem snýr að Samkeppniseftirlitinu, hverjar heimildirnar eru og skrifa þær inn. Það er enginn á móti því að það sé eftirlit með þeim sem hafa ákveðnar heimildir en það þurfi að vera skýrt skrifað inn hverju á að fylgja eftir. Það er lykilatriði og ég heyri ekki betur (Forseti hringir.) en að ég og hæstv. ráðherra séum sammála um það sem þarf að ná utan um enn betur en gert er í því frumvarpi sem er núna á leiðinni til hv. atvinnuveganefndar.