búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Aðeins til að halda samhengi í þeirri spurningu sem mig langar að bera upp þá er rétt að hafa í huga að það starfsumhverfi sem mjólkin er í er búið að vera, ef ég man rétt, síðan 2004. Breytingar á búvörulögum gagnvart mjólk voru ekki í ríkisstjórnarsáttmálanum. Stjórnarliðar margir hverjir voru búnir að segja í samtölum við ýmsa aðila í mjólkuriðnaðinum og hagsmunasamtök landbúnaðarins að ekki yrðu breytingar gagnvart mjólkuriðnaði en í raun er í þessum drögum verið að fella hann undir samkeppnislög. Bæði í Noregi og ESB njóta búvörulög tiltekins forgangs yfir samkeppnisreglurnar. Með öðrum orðum, samkeppnisreglur víkja fyrir búvörulögum ef þessum tveimur lagabálkum lýstur saman. Með frumvarpi hæstv. ráðherra er hins vegar tryggt, einkum með aðkomu Samkeppniseftirlitsins, að skráning og eftirlit og úrskurður samkeppnislaga gangi framar búvörulögum. Þess vegna langar mig, herra forseti, að spyrja hvers vegna hæstv. ráðherra telur að við þurfum að ganga lengra heldur en, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef, Noregur og Evrópusambandið.