157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

búvörulög.

374. mál
[17:57]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Sannarlega er ekki verið að gera lítið úr því dómafordæmi sem er til staðar um 11. gr. Það er verið að skýra þessar heimildir í búvörulögum.

Eftir alla þá umræðu sem átt hefur sér stað um mikilvægi samkeppniseftirlits fyrir hagsmuni, ekki bara neytenda heldur smærri fyrirtækja og bænda í þessu samhengi, þá þykir mér nú eiginlega miður að þetta skuli vera dæmið sem hv. þingmaður tekur til að tala um dómara og böðla. Ég ætla að leyfa mér að vera algjörlega ósammála þeim hughrifum sem hv. þingmaður kýs að kalla hér upp þó að við séum að reyna að tryggja það að Samkeppniseftirlitið hafi heimildir til að hafa eftirlit með rekstri sem fær víðtækari undanþáguheimildir en nokkur önnur atvinnugrein á Íslandi. Það er ekki til of mikils mælst að menn hagi sér þá og samþykki að með þeim undanþáguheimildum sé haft eftirlit. Við eigum hér stofnun og við eigum hér samkeppnislög og meðan svo er til staðar er það bara mitt hlutverk að tryggja að þessi aðili, (Forseti hringir.) þessi eftirlitsaðili sem fer með þetta hlutverk, geti fylgst með því að þessar víðtæku undanþáguheimildir, sem eru víðtækari en þekkist í löndunum í kringum okkur — af því að það er gerð krafa um eignarhald bænda, við göngum miklu lengra — (Forseti hringir.) og það sé tryggt að þetta sé ekki misnotað. Það er svarið. Má fara betur yfir og skýra þetta í lagagreininni þannig að menn átti sig (Forseti hringir.) algerlega á því hvert hlutverkið er? Algerlega og ég treysti því að nefndin fari vel ofan í það.