Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hefur borist bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 498, um samráð um stjórnarfrumvörp, frá Bryndísi Haraldsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá samstarfsráðherra Norðurlanda þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 50, um norrænt samstarf, frá Dagbjörtu Hákonardóttur. Að lokum hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 515, um geðheilsuteymi heilsugæslunnar, frá Rósu Guðbjartsdóttur og á þskj. 530, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni.