jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Frú forseti. Ég mæli hérna fyrir frumvarpi til laga sem þjóna því markmiði að breyta lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Í stuttu máli má segja að í frumvarpi þessu sé lagt til að skylda til jafnlaunavottunar verði afnumin í núverandi mynd. Fyrir kosningar sagði Viðreisn að nauðsynlegt væri að endurskoða þetta kerfi og það er það sem við erum að gera núna. Fyrirtæki og stofnanir eiga þess vegna ekki lengur að þurfa að leggja í mikinn kostnað við að fá utanaðkomandi vottunaraðila til að taka út laun fyrirtækja með svokallaðri jafnlaunavottun á þriggja ára fresti og undirgangast síðan millivottun árlega. Við höfum hlustað og við höfum meðtekið gagnrýni atvinnulífsins um að þetta kerfi hafi reynst býsna þungt og kostnaðarsamt. Þá er ábyrgt að bregðast við og þetta frumvarp þjónar þeim tilgangi. Við ætlum hins vegar ekki að gefa neinn afslátt hvað varðar markmið stjórnvalda um jafnrétti á vinnumarkaði og erum í mínum huga að ná fram eðlilegu jafnvægi með þessu frumvarpi hvað varðar sjónarmið um jafnrétti og sjónarmið um einfalt og skiljanlegt kerfi sem er atvinnulífinu ekki of þungt eða kostnaðarsamt. Við vitum það öll hér í þessum sal að frá 1976 hefur verið lagaskylda á fyrirtækjum og atvinnulífinu um að tryggja jöfn laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Sú lagaskylda er vitaskuld enn algjört kjarnaatriði í okkar lögum. Við verðum að muna það í allri þessari umræðu að það er vegna aðgerða sem Ísland hefur náð þeim árangri í jafnréttismálum sem raun ber vitni. Það er vegna aðgerða sem staða jafnréttismála á Íslandi er jafn góð og við þekkjum.
Þá aðeins að þeim breytingum sem hér eru lagðar til. Þegar þessi ríkisstjórn var stofnuð fór af stað vinna um hagsýni í ríkisrekstri sem hófst 2. janúar 2025. Leitað var eftir tillögum frá almenningi í landinu og bárust 3.985 umsagnir með yfir 10.000 tillögum. Þegar hagræðingarhópurinn var settur af stað í kjölfar þessa víðtæka samráðs við almenning í landinu var þetta ein þeirra aðgerða sem settar voru á kortið, með leyfi forseta:
„Lög um jafnlaunavottun voru mikið framfaraskref þegar þau voru sett en fjölmargar ábendingar voru á þá lund að núgildandi kerfi væri meira íþyngjandi en tilefni er til.“
Þarna kom líka fram að áætlað hagræði fyrir hið opinbera væri 1,5 milljarðar á tímabilinu en stærsti hluti hagræðisins kæmi vitaskuld fram hjá atvinnulífinu. Sem ég segi þá höfum við hlustað og meðtekið þessa gagnrýni og erum í þeim tilgangi núna að leggja fram frumvarp sem afnemur jafnlaunavottun í núverandi mynd en kemur á fót öðru og mun einfaldara kerfi.
Ég vil ítreka og árétta það sem ég nefndi strax hér í upphafi að það verður vitaskuld engin breyting á því að það á að tryggja sömu laun, jöfn laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Það er enginn afsláttur veittur af þeirri eðlilegu og nauðsynlegu skyldu. Með þessum breytingum tryggjum við í mínum huga sama markmið um launajafnrétti en með einfaldari og hagkvæmari hætti, því að það ógnar líka jafnréttismálum og baráttunni ef það er orðið þannig að kerfin sem sett eru á fót til að ná því fram eru óvinsæl í samfélaginu öllu. Það er nauðsynlegt að taka fram fyrir samhengi hlutanna að ég er þeirrar skoðunar að þær aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til í gegnum tíðina, þar á meðal jafnlaunavottun, hafi stuðlað að jafnrétti og náð fram árangri, eftirtektarverðum árangri á heimsvísu. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að aðgerðir á borð við jafnlaunavottun hafi ýtt undir og þroskað hugsun í atvinnulífinu, hjá atvinnurekendum, hjá stjórnendum, hjá mannauðsstjórum og hjá launþegum. Fólk er meðvitaðra og meira á tánum hvað þetta atriði varðar og þetta hefur leitt til þess að þekking á jafnréttismálum hefur aukist í samfélaginu öllu. En kerfið hefur verið gagnrýnt og við erum að bregðast við gagnrýninni.
Á þeim nótum er lagt til í þessu frumvarpi að í staðinn fyrir jafnlaunavottun tökum við upp aðra og einfaldari aðferð. Hún gengur út á það að fyrirtæki þurfi með einföldum og rafrænum hætti að veita upplýsingar til Jafnréttisstofu um að sömu laun séu greidd fyrir sömu eða jafn verðmæt störf, einfaldlega um það að launaákvarðanir séu teknar út frá málefnalegum viðmiðum og sjónarmiðum. Tillit var tekið til tillagna starfshóps um hagræðingu þar sem lagt var til að létt yrði á jafnlaunavottuninni, og við göngum lengra og afnemum hana, og að stærðarmörk fyrirtækja yrðu rýmkuð. Í dag er sú lagaskylda í landinu að öll fyrirtæki þar sem starfa 25 eða fleiri undirgangist jafnlaunavottun. Við færum nú stærðarmörk þannig að öll fyrirtæki þar sem starfa 50 manns eða fleiri þurfi á þriggja ára fresti að skila gögnum um sínar launaákvarðanir.
Áform um endurskoðun laga og reglna um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana voru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í júní og júlí á síðasta ári og drög að frumvarpi þessu voru kynnt í samráðsgáttinni í september og október á síðasta ári. Tekið var tillit til þeirra athugasemda sem bárust eftir því sem tilefni var til og frumvarpið var samið í samráði við Jafnréttisstofu. Málið er í mínum huga býsna vel kynnt og er komið hér fyrir þingið eftir góða kynningu og umræðu.
Virðulegi forseti. Samkvæmt gildandi lögum í dag er sú skylda á öllum fyrirtækjum og stofnunum með tiltekinn fjölda starfsfólks, 25 eða fleiri, að innleiða jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur jafnlaunastaðals og að þetta kerfi sé vottað af sérstökum vottunaraðilum. Þetta kerfi hefur verið kallað jafnlaunavottun. Þetta er kannski kjarnaatriðið hvað varðar þá gagnrýni sem atvinnulífið hefur sett fram, þ.e. þessi jafnlaunastaðall og það að fyrirtæki hafi þurft að leita til vottunarstofa. Þetta hafi verið kostnaðarsamt, þetta hafi verið flókið og þetta hafi verið þungt. Vottunaraðilar hafa þurft að votta allar launaákvarðanir fyrirtækja og stofnana og auðvitað tekið fyrir það þóknun. Minni fyrirtæki á almennum markaði hafa þó haft val um að fara í jafnlaunavottun eða að fá svokallaða jafnlaunastaðfestingu. Núna er verið að leggja til að við förum aðra og mun einfaldari leið að sama markmiði þar sem fyrirtækjum og stofnunum af tiltekinni stærð verði gert að skila tilteknum gögnum til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti til að sýna fram á það að laun í fyrirtækjum og stofnunum uppfylli kröfur jafnréttislaga. Af því leiðir að fyrirtæki eiga ekki lengur að þurfa að leita til vottunarstofa til að fara yfir gögnin með tilheyrandi kostnaði og vinnu. Eins og ég nefndi erum við að fækka fyrirtækjum með því að stækka viðmiðin. Við miðum við fyrirtæki þar sem starfa 50 eða fleiri í stað þess sem nú er í dag, 25 eða fleiri. Þetta er töluverð breyting. Þessi breyting á stærðarmörkum er hugsuð til að koma til móts við þá gagnrýni atvinnulífsins á núverandi kerfi að þetta hafi verið íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki. Við erum að mæta þeirri gagnrýni með þessu skrefi, að fara frá tölunni 25 og upp í 50. Til einföldunar frá núverandi kerfi er jafnframt gert ráð fyrir að sama regla gildi fyrir öll fyrirtæki og stofnanir, jafnt á almenna og opinbera vinnumarkaðnum, þó með einni stórri undantekningu sem er að öll ráðuneyti innan stjórnarráðsins skuli skila gögnum um launaákvarðanir sínar óháð fjölda starfsfólks, þannig að jafnvel í þeim ráðuneytum þar sem starfa fleiri en 50 manns verður þessi skylda lögð á. Mér finnst þetta mjög mikilvægt atriði, mikilvægt að ráðuneytin gangi fram fyrir skjöldu, sýni gott fordæmi og falli öll undir lagaskyldu um skýrslugjöf um launasetningar, jafnvel þó að starfsmannafjöldinn í einhverjum ráðuneytum sé undir þeim mörkum sem frumvarpið kveður á um.
Við erum að fara frá skilum á eins árs fresti og yfir í á þriggja ára fresti því þó að jafnlaunavottunin hafi verið ferli á þriggja ára fresti þá var í gildi og er í gildi svokölluð millivottun árlega. Hér er líka um töluverða breytingu að ræða; ein almenn regla um skil á þriggja ára fresti í stað þess að þetta sé árleg vinna og við miðum við 50 manna fyrirtæki í stað 25 manna. Gögnin sem fyrirtækjum og stofnunum verður gert að skila eru gögn um starfaflokkun og launagreiningu og í þeim tilvikum þar sem fram koma upplýsingar um kynbundinn launamun verður auðvitað brugðist við og fyrirtækjum gert að skila úrbótaáætlun um það hvernig verði brugðist við og hvernig þessi kynbundni launamunur verði leiðréttur. Um er að ræða skil á töluvert færri gögnum en núverandi kerfi gerir kröfu til og sjaldnar. En eins og ég segi: Mælist launamunur í fyrirtæki eða stofnun er skýrt að bregðast þurfi við og skila áætlun um úrbætur og útskýra hvernig leiðrétta eigi þennan kynbundna launamun.
Þróaðar verða stafrænar lausnir vegna gagnaskila fyrirtækja og stofnana með það að markmiði að það verði einfaldara að skila inn gögnum. Þetta mun líka einfalda yfirferð Jafnréttisstofu, úrvinnslu hjá Jafnréttisstofu og eftirlit með framkvæmd laganna. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessi lög taki gildi strax 1. september og að þróun og hönnun þessarar lausnar verði lokið fyrir þann tíma þannig að kerfið verði orðið virkt strax við gildistöku laganna. Þetta finnst mér mikilvægt, að það sé ekki bara verið að létta á regluverkinu og draga úr því heldur líka verið að einfalda gagnaskil, sem er sjálfstæð breyta um að draga úr kostnaði fyrirtækjanna. Svo mun ég, samkvæmt frumvarpinu, láta meta framgang og árangur af þessari breytingu og áfram verða framkvæmdar reglubundnar viðhorfskannanir. Sem ráðherra jafnréttismála tek ég þennan þátt málsins alvarlega því að það er sannarlega ekki ætlun mín að við víkjum frá markmiðum okkar um að vera með vakandi auga yfir jafnrétti á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi er ekki verið að breyta eða draga úr þeirri kröfu að fyrirtæki og stofnanir skili inn gögnum sem sýna fram á að laun séu ákveðin á sama hátt fyrir allt starfsfólk óháð kyni. Breytingarnar sem eru boðaðar í frumvarpinu eru hins vegar fallnar til þess að gera atvinnurekendum kleift að uppfylla markmið jafnréttislaga á skilvirkari, hagkvæmari og gagnsærri hátt en áður. Með öðrum orðum: Sömu markmið, skilvirkari leiðir. Markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna um jöfn laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf eru óbreytt.
Nokkur ár eru liðin og það hefur verið mikil umræða um jafnlaunavottun í samfélaginu öllu. Mér finnst alltaf sjálfstætt markmið í stjórnmálum að við leggjum við hlustir og það erum við að gera í þessu máli. Ábyrgð atvinnurekenda til að ná fram launajafnrétti er rík og það er eðlileg krafa í landi sem tekur jafnréttismál alvarlega að launakerfi séu gagnsæ og að launaákvarðanir byggist á málefnalegum sjónarmiðum. Mér finnst við hér vera að ná fram eðlilegu jafnvægi milli ólíkra hagsmuna, jafnréttissjónarmiða og skilvirkni og einfaldleika fyrir atvinnulíf.
Hvað varðar kostnað mun þetta hafa í för með sér kostnaðarhagræði fyrir ríkissjóð en ábatinn, minni kostnaður, verður augljós fyrir atvinnulífið allt. Þetta verður sparnaður upp á milljarða fyrir atvinnulífið og það munar vitaskuld um það.
Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins, hlakka til umræðunnar hér og leyfi mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.