157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:25]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er sannkallaður gleðidagur í dag á Alþingi þegar hæstv. dómsmálaráðherra mælir hér loksins fyrir frumvarpi til þess að afnema jafnlaunavottunarkerfið í núverandi mynd og það er ástæða til að hrósa hæstv. ráðherra fyrir þessa framgöngu. Hún kemur inn á það í framsögu sinni að hér sé verið að leggja til annað og einfaldara kerfi og varla er nú annað hægt, en með því er ég ekki að gera lítið úr þessum breytingum sem hér er ráðist í, sem ég fagna einlæglega. En mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra út í markmiðið með lagasetningunni, nýrri löggjöf um jafnlaunavottun, af því að þetta hljómar eins og sama markmið og síðast og sporin hræða. Þar var auðvitað markmiðið að vinna gegn kynbundnum launamun. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í það hvað liggi til grundvallar því að ákveðið er að ráðast í nýtt kerfi í stað þess að afnema það bara með öllu.