157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil kannski byrja á því, af því að hv. þingmaður spurði mig að því í gær hvort þetta frumvarp væri ekki væntanlegt, að hér mæti ég þeirri kröfu degi síðar með frumvarpi hér á Alþingi. Markmiðið er auðvitað launajafnrétti á vinnumarkaði og við búum við jafnréttislög þar sem þetta er algjört kjarnaatriði. Við vitum það að kynbundinn launamunur, bæði á milli stétta en líka fyrir sömu störf, hefur verið viðvarandi breyta á Íslandi eins og í heiminum öllum. Vitaskuld ætlum við ekki að hverfa frá því markmiði. Þá er eðlilegt að hafa innsýn í það hvernig launaákvarðanir eru í fyrirtækjum og hjá hinu opinbera þannig að, eins og ég segi, markmiðið er hið sama, launajafnrétti á Íslandi. Ég vona að allir stjórnmálaflokkar séu sammála um að það sé og eigi að vera markmiðið, en hafa einfaldara kerfi til að ná því fram.